Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 01. september 2022 11:14
Elvar Geir Magnússon
PSG gerir tilboð í Skriniar
Mynd: EPA
RMC segir að Paris Saint-Germain hafi gert 60 milljóna punda tilboð í Milan Skriniar, varnarmann Inter.

Slóvakinn hefur verið orðaður við mörg félög í Evrópu en talið var að hann yrði áfram hjá Inter og viðræður fóru í gang um nýjan samning.

Staðan gæti breyst núna eftir tilboðið frá frönsku meisturunum.

Skriniar er 27 ára miðvörður sem varð Ítalíumeistari með Inter á síðasta ári og bikarmeistari á síðasta ári.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner