Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   lau 01. október 2022 15:30
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Dortmund og Union Berlin töpuðu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA

FC Bayern er strax komið aftur í góða stöðu í toppbaráttu þýsku deildarinnar eftir úrslit dagsins. Bayern er í þriðja sæti með 15 stig eftir 8 umferðir, tveimur stigum frá toppliðunum.


Borussia Dortmund tapaði útileik gegn Köln eftir að hafa verið með forystuna í leikhlé. Julian Brandt skoraði eftir undirbúning frá fyrirliðanum unga Jude Bellingham en heimamenn komu til baka eftir leikhlé.

Dortmund var talsvert betra liðið í fyrri hálfleik og fóru gestirnir illa með færin sín. Þeir hefðu átt að vera búnir að skora nokkur mörk fyrir leikhlé og refsuðu heimamenn í síðari hálfleik. Köln var mun betra liðið eftir leikhlé og skoraði þrjú mörk til að snúa stöðunni við.

Dortmund minnkaði muninn og var lokakaflinn gífurlega spennandi en það dugði ekki til og urðu lokatölur 3-2 fyrir Köln.

Köln 3 - 2 Dortmund
0-1 Julian Brandt ('31)
1-1 Florian Kainz ('53)
2-1 Steffen Tigges ('56)
3-1 Dejan Ljubicic ('71)
3-2 Benno Schmitz ('78, sjálfsmark)

Union Berlin heimsótti þá Evrópudeildarmeistarana til Frankfurt og lenti tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik. Mario Götze og Jesper Lindström skoruðu mörk heimamanna sem verðskulduðu forystuna.

Union var betra liðið í síðari hálfleik og fékk að spila síðustu 22 mínúturnar manni fleiri en fann ekki leið í gegnum varnarmúr Frankfurt. Lokatölur urðu því 2-0 og deilir Union toppsætinu með Freiburg eftir þetta tap. 

Freiburg hafði betur gegn Mainz með tveimur mörkum í fyrri hálfleik og er með 17 stig eftir 8 umferðir. Mainz minnkaði muninn í upphafi síðari hálfleiks og fékk urmul tækifæra til að jafna en inn vildi boltinn ekki.

Timo Werner virðist hrokkinn í gang og lék á alls oddi í stórsigri RB Leipzig gegn Bochum. Werner setti tvennu og skoraði Christopher Nkunku tvö, auk þess að klúðra vítaspyrnu. Leipzig er aðeins með 11 stig eftir 8 umferðir.

Að lokum hafði Wolfsburg betur gegn Stuttgart í neðri hlutanum með dramatísku sigurmarki í uppbótartíma.

Eintracht Frankfurt 2 - 0 Union Berlin
1-0 Mario Götze ('12)
2-0 Jesper Lindström ('42)

Freiburg 2 - 1 Mainz 
1-0 Michael Gregoritsch ('3)
2-0 Daniel-Kofi Kyereh ('37)
2-1 Aaron Martin ('52)

RB Leipzig 4 - 0 Bochum
1-0 Timo Werner ('15)
2-0 Christopher Nkunku ('23, víti)
3-0 Timo Werner ('53)
4-0 Christopher Nkunku ('85)

Wolfsburg 3 - 2 Stuttgart
0-1 S. Guirassy ('22)
1-1 O. Marmoush ('23)
2-1 Maximilian Arnold ('38)
2-2 Konstantinos Mavropanos ('45)
3-2 Yannick Gerhardt ('91)


Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 25 21 3 1 92 24 +68 66
2 Dortmund 25 16 7 2 53 26 +27 55
3 Hoffenheim 25 15 4 6 53 33 +20 49
4 Stuttgart 25 14 5 6 50 34 +16 47
5 RB Leipzig 25 14 5 6 48 34 +14 47
6 Leverkusen 25 13 5 7 48 32 +16 44
7 Frankfurt 25 9 8 8 48 49 -1 35
8 Freiburg 25 9 7 9 37 42 -5 34
9 Augsburg 25 9 4 12 31 43 -12 31
10 Hamburger 25 7 8 10 28 36 -8 29
11 Union Berlin 25 7 7 11 30 42 -12 28
12 Gladbach 26 7 7 12 30 43 -13 28
13 Werder 25 6 7 12 29 45 -16 25
14 Köln 25 6 6 13 34 43 -9 24
15 Mainz 25 5 9 11 29 41 -12 24
16 St. Pauli 26 6 6 14 23 42 -19 24
17 Wolfsburg 25 5 5 15 34 55 -21 20
18 Heidenheim 25 3 5 17 24 57 -33 14
Athugasemdir
banner
banner