Fotbolti.net
01.10.23 - 23:21
Sölvi Haraldsson

Birkir Már: Það var enginn að pæla í því að þeir hefðu skorað

Birkir Már: Það var enginn að pæla í því að þeir hefðu skorað
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mér fannst við töluvert betri aðilinn í leiknum og vorum með yfirburði í fyrri hálfleik sem við nýttum okkur ekki alveg. En það var það sama í seinni hálfleik. Við vorum með yfirburði og náðum að skora úr færunum okkar. Þetta var mjög góður leikur.“ sagði Birkir Már Sævarsson, varnarmaður Vals, eftir 4-1 sigur á FH í kvöld.

Það leit aldrei út eins og Valsliðið væri að fara að missa leikinn niður í seinni hálfleik en Birkir var spurður út í það hvort honum hafi ekki liðið þannig.

„Jú ég er sammála. Mér fannst góð holning á öllu liðinu. Við fengum nóg af færum til þess að klára þetta og í seinni hálfleik gerðum við það.“

Birkir var mjög sáttur með hvernig Valsliðið steig upp og hélt áfram þrátt fyrir að fá jöfnunarmarkið á sig í fyrri hálfleik.

Þó þeir skoruðu þá héldu allir bara áfram. Það var enginn að pæla í því að þeir hefðu skorað. Við ætluðum bara að gera okkar og mér fannst við gera það bara í 90 mínútur.

Seinasti leikur Vals á tímabilinu er gegn Víkingi R. á útivelli. Birkir vill vinna þann leik og klára tímabilið á sigri.

Við ætlum bara að halda áfram að gera okkar. Það er einn leikur eftir og við ætlum að taka þrjú stig úr honum til að minnka bilið í Víkinga og láta þetta líta aðeins betur út á töflunni.“ sagði Birkir Már Sævarsson, varnarmaður Vals, eftir 4-1 sigur á FH í kvöld.

Nánar er rætt við Birki í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.