Fotbolti.net
01.10.24 - 21:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Championship: Arnór á bekknum í tapi - West Brom á toppinn

Championship: Arnór á bekknum í tapi - West Brom á toppinn
Canon

Mynd: Getty Images

Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Plymouth sem heimsótti Burnley í kvöld.

Eina mark leiksins skoraði Josh Brownhill af vítapunktinum en Plymouth tókst ekki að ógna James Trafford í marki Burnley. Guðlaugur Victor var tekinn af velli þegar um tíu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma.

Arnór Sigurðsson var á bekknum hjá Blackburn sem tapaði gegn Coventry en Arnór var í fyrsta sinn í hópnum eftir landsleikjahléið en hann veiktist úti í Tyrklandi.

West Brom missti toppsætið til Sunderland en Middlesbrough lagði West Brom af velli.

Jobe Bellingham kom Sunderland yfir gegn Derby undir lok fyrri hálfleiks og WIlson Isidor innsiglaði sigurinn. Luton sem féll úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð fer illa af stað en liðið gerði jafntefli gegn Oxford og var manni færri síðasta korterið eftir að Liam Walsh var rekinn af velli.

Burnley 1 - 0 Plymouth
1-0 Josh Brownhill ('26 , víti)

Cardiff City 1 - 0 Millwall
1-0 Perry Ng ('39 )

Coventry 3 - 0 Blackburn
1-0 Jake Bidwell ('11 )
2-0 Haji Wright ('48 )
3-0 Brandon Thomas-Asante ('84 )

Luton 2 - 2 Oxford United
1-0 Jordan Clark ('10 )
2-0 Thomas Kraus ('37 )
2-1 Tyler Goodhram ('45 )
2-2 Ruben Rodrigues ('54 )
Rautt spjald: Liam Walsh, Luton ('77)

QPR 1 - 3 Hull City
0-1 Cody Drameh ('25 )
0-2 Chris Bedia ('37 )
1-2 Nicolas Madsen ('44 , víti)
1-3 Liam Millar ('71 )

Sunderland 2 - 0 Derby County
1-0 Jobe Bellingham ('40 )
2-0 Wilson Isidor ('55 )

West Brom 0 - 1 Middlesbrough
0-1 Hayden Hackney ('74 )

Norwich 1 - 1 Leeds
1-0 Josh Sargent ('15 , víti)
1-1 Largie Ramazani ('60 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Swansea4+610
2Charlton Athletic3+39
3Wolves4+37
4QPR3+37
5Bristol City4+17
6Middlesbrough3+26
7West Brom3+16
8Millwall3+16
9Birmingham4+16
10Sheffield Utd4+16
11West Ham4+15
12Blackburn405
13Watford4-15
14Bolton4-14
15Derby County4-24
16Lincoln City4-24
17Southampton4+53
18Cardiff City303
19Norwich4-23
20Portsmouth4-33
21Stoke City4-53
22Wrexham3-12
23Burnley3-51
24Preston NE4-60
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.