01.12.19 - 11:37
Brynjar Ingi Erluson
Þrír leikmenn framlengja við Vestra

Daniel Badu verður áfram hjá Vestra

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daniel Badu verður áfram hjá Vestra

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þrír leikmenn framlengdu samninga sína við Vestra í gær en það eru þeir Brenton Muhammad, Daniel Badu og Friðrik Þórir Hjaltason.
Vestri vann sér inn sæti í Inkasso-deildinni í sumar er liðið lenti í 2. sæti í 2. deildinni.
Brenton er fæddur árið 1990 og er markvörður en hann hefur spilað 17 leiki í deild- og bikar með Vestra frá því hann kom til félagsins á síðasta ári.
Badu er fæddur árið 1987 og hefur spilað á Íslandi frá 2010 en hann spilaði fyrst með Magna og Njarðvík áður en hann hélt í BÍ/Bolungarvík sem varð síðar að Vestra.
Friðrik Þórir er þá fæddur árið 1998 og er einn af lykilmönnum félagsins en hann hefur spilað yfir 90 leiki fyrir aðalliðið þrátt fyrir ungan aldur.