Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 02. janúar 2023 17:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Betra fyrir Mac Allister að vera áfram hjá Brighton
Mynd: EPA

Argentínumaðurinn Alexis Mac Allister leikmaður Brighton hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína með liðinu á tímabilinu og hélt uppteknum hætti með argentíska landsliðinu á HM og stóð uppi sem heimsmeistari.


Fyrir vikið hefur mikið verið rætt og ritað um að hann sé eftirsóttur af mörgum af stærstu liðum Evrópu en Roberto de Zerbi stjóri Brighton segir að það sé betra fyrir leikmanninn að vera áfram hjá félaginu.

„Ég er ánægður ef hann vill vera áfram hjá okkur til loka tímabilsins og ég held að það sé betra fyrir hann. Klárlega betra fyrir okkur en einnig fyrir hann því það gæti verið vesen fyrir hann að skipta um lið í janúar," sagði De Zerbi.

Brighton heimsækir Everton á morgun í ensku úrvalsdeildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner