Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Jón Óli léttur: Mannandskotinn kemur úr logninu úr miðbæ Reykjavíkur
Gylfi Tryggva: Ógeðistilfinning efst í kollinum
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
   mán 02. mars 2026 11:05
Snæbjört Pálsdóttir
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Eimskip
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég var ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli þegar Steini hringdi.“ Svaraði nýliðinn í Landsliðshópnum þegar hún var spurð hvar hún hefði verið þegar hún fékk kallið. 

„Ég hringdi held ég fyrst í Thelmu markmann hérna í hópnum og svo kærastann minn."


Þeirra bíða ærið verkefni í þessum landsliðsglugga en fyrsti leikur er gegn ríkjandi heimsmeisturum Spánar og sá seinni við Evrópumeistara Englands. 

„Þetta eiginlega gæti ekki byrjað á stærri og betri leikjum en mér finnst þetta bara geggjað að koma inn í svona stórt verkefni á móti svona stórum liðum og fá aðeins að máta sig í kringum það og undirbúning fyrir það. Þannig að bara geggjað."

Hvernig hafa stelpurnar tekið á móti þér?

„Bara hrikalega vel, þetta er mjög góður hópur og bara tekið mjög vel á móti okkur og bara já gæti ekki beðið um betri hóp til að koma inn í.“


"Þetta eru leikmenn sem að ég lít upp til og hef litið upp til í einhver ár þannig að bara geggjað að fá að æfa með þeim og læra af þeim líka."

Elín Helena er ekki eini nýliðinn en fyrrum liðsfélagi hennar hjá Breiðablik, Birta Georgsdóttir, var einnig valin í fyrsta sinn.

„Þegar ég frétti að við vorum báðar að koma inn það er bara frábært að fá að gera þetta með bestu vinkonu sinni og upplifa þetta saman."

Sögusagnir hafa verið á kreiki um að Elín Helena sé á leið út í atvinnumennsku, er eitthvað til í því?

„Eins og staðan er núna þá er ég leikmaður Breiðabliks og ég er samningsbundin út þetta tímabil þannig ég geri bara ráð fyrir að ég verði heima þangað til þá allavega."

Elín Helena og Breiðabliksliðið lék nýverið við feykisterkt lið Häcken í Evrópubikarnum, telur hún að þeir leikir muni hjálpa henni í þessu verkefni?

„Mjög erfiðir evrópuleikir á móti bara fáránlega góðu liði og við kannski ekki alveg á okkar besta stað einmitt í þessum leikjum en bara gott að geta aðeins mátað sig við betri leikmenn sem maður er ekki vanur að spila á móti. Heima ertu að spila á móti sömu leikmönnunum svolítið aftur og aftur. Þannig bara geggjað að fá að móta sig við aðra leikmenn. Ég held að það geti klárlega hjálpað."

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan

Slapp
banner
banner