Excelsior og Jong PSV gerðu markalaust jafntefli í hollensku B-deildinni í kvöld en tveir Íslendingar komu við sögu í leiknum.
Elías Már Ómarsson var mættur aftur í byrjunarlið Excelsior en hann hefur verið á bekknum í síðustu þremur leikjum.
Hann hefur skorað 18 mörk í B-deildinni á þessu tímabili en þó ekki tekist að skora síðan 21. janúar.
Elías spilaði allan leikinn í dag og þá kom Kristófer Ingi Kristinsson inná sem varamaður hjá Jong PSV á 63. mínútu. Hann nældi sér svo í gult sjald undir lok leiksins.
Excelsior er í 10. sæti deildarinnar með 38 stig á meðan Jong PSV er í 15. sæti með 31 stig.
Athugasemdir