Fotbolti.net
02.07.20 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Stóri munurinn milli Liverpool og City er varnarlega

Pep Guardiola og Jurgen Klopp.

Pep Guardiola og Jurgen Klopp.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City mætir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og spáir Alan Shearer því að boðið verði upp á stórskemmtilegan leik.

„Bæði lið hafa verið ótrúleg sóknarlega en City er klárlega ekki eins öflugt varnarlega og Liverpool. Ég sé vörn City ekki halda Liverpool í skefjum," segir Shearer.

„Mesti munurinn á þessum liðum er varnarlega. Þegar þú sameinar erfið meiðsli Aymeric Laporte og að Vincent Kompany fór síðasta sumar þá sérðu af hverju þetta er veikleikinn hjá City."

„Kompany var fyrirliði liðsins og oft drifkraftur. Liðinu hefur vantað ráðandi mann í öftustu línu á tímabilinu og ég er viss um að þetta verði í forgangi hjá Guardiola þegar félagaskiptaglugginn opnast."
Liverpool ætlar að hirða met af City
Fyrir leikinn í kvöld mun Manchester City standa heiðursvörð fyrir Liverpool.

„Liverpool hefur þegar tekið titilinn af City og nú vill félagið líka taka met af þeim," segir Shearer.

Liverpool getur náð 107 úrvalsdeildarstigum á þessu tímabili. Stigamet City er 100 stig sem var tímabilið 2017-18. City á einnig metið yfir að vinna með mesta mun (19 stig 2018) og flesta sigra (32, 2018 og 2019). Liverpool er sem stendur með 86 stig, 23 stiga forystu og er með 28 sigra úr 31 leik.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Man City1+13
7Ipswich Town1+13
8Leeds1+13
9Chelsea1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18West Ham38-1939
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.