Fotbolti.net
02.09.17 - 23:44
Brynjar Ingi Erluson

2. deild kvenna: Fjölnir í dauðafæri að komast upp

Afturelding/Fram vann þægilegan sigur í dag

Afturelding/Fram vann þægilegan sigur í dag

Canon

Mynd: Kristinn Traustason

Hertz
Þrír leikir fóru fram í 2. deild kvenna í dag en Afturelding/Fram vann 6-0 sigur á Hvíta Riddaranum. Fjölnisliðið er í dauðafæri um að taka annað sætið.
Afturelding/Fram er búið að vinna 2. deildina en liðið skoraði sex mörk gegn Hvíta Riddaranum í dag.

Stefanía Valdimarsdóttir gerðu tvö mörk fyrir Aftureldingu/Fram en hin fjögur mörkin skiptust á fjóra leikmenn. Margrét Regína Grétarsdóttir, Amanda Mist Pálsdóttir, Sigrún Gunndís Harðardóttir og Brittany Matthews gerðu hin mörkin.

Völsungur vann Álftanes 4-2 í hörkuleik. Álftanes er búið að spila alla sína leiki í deildinni en liðið er í öðru sæti sem stendur. Fjölnir getur með sigri á Einherja komið sér upp í annað sæti.

Einherji gerði á meðan 1-1 jafntefli við Augnablik en hér fyrir neðan má sjá markaskorara og úrslit dagsins.

Úrslit og markaskorarar:

Einherji 1 - 1 Augnablik
1-0 Linda Björk Stefánsdóttir (\'76 )
1-1 Fanney Einarsdóttir (\'90 )

Völsungur 4 - 2 Álftanes
0-1 Aþena Þöll Gunnarsdóttir (\'5 )
1-1 Krista Eik Harðardóttir (\'39 )
2-1 Harpa Ásgeirsdóttir (\'42 )
2-2 Oddný Sigurbergsdóttir (\'49 )
3-2 Harpa Ásgeirsdóttir (\'74 )
4-2 Hulda Ösp Ágústsdóttir (\'90 )

Hvíti Riddarinn 0 - 6 Afturelding/Fram
0-1 Sigrún Gunndís Harðardóttir (\'16 )
0-2 Stefanía Valdimarsdóttir (\'26 )
0-3 Amanda Mist Pálsdóttir (\'31 )
0-4 Stefanía Valdimarsdóttir (\'38 )
0-5 Margrét Regína Grétarsdóttir (\'51 )
0-6 Brittany Matthews (\'80 )
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.