fös 02. nóvember 2018 15:56
Magnús Már Einarsson
Enski boltinn á leið í Sjónvarp Símans
Úr leik í ensku úrvalsdeildinni.
Úr leik í ensku úrvalsdeildinni.
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildin verður á dagskrá í Sjónvarpi Símans frá og með næsta keppnistímabili. Fram kemur á Vísi í dag að enska úrvalsdeildin verði ekki áfram á Stöð 2 Sport og samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur Sjónvarp Símans tryggt sér sjónvarpsréttinn.

Enska úrvalsdeildin hefur verið á Stöð 2 Sport samfleytt síðan árið 2007 en breytingar verða frá og með næsta tímabili.

Björn Víglundsson, framkvæmdastjóri Miðla á Sýn, sagði ofurtilboð hafa ráðið úrslitum í útboðinu.

„Við settum fram afar myndarlegt tilboð sem var veruleg hækkun frá því sem við greiðum fyrir enska boltann í dag. Niðurstaðan var hins vegar að ofurtilboð barst úr annarri átt sem engin glóra væri í að jafna,“ sagði Björn.

Fréttatilkynning Sýn
Í vikunni fór fram útboð á enska boltanum hjá Premier League fyrir leiktímabilið 2019-2021. Nokkur spenna var í tengslum við útboðið enda ljóst að fleiri en einn myndi bjóða í sýningarréttinn. Þrátt fyrir að Sýn hafi boðið mikla hækkun frá síðasta tímabili er nú ljóst að annar aðili bauð enn meiri hækkun. Það var hins vegar mat Sýnar að hærra tilboð myndi gera það að verkum að tap yrði á þessari starfsemi miðað við eðlilegt verð til viðskiptavina en óverulegur rekstrarhagnaður hefur verið á þessari vöru hingað til.

Áfram úrvals íþróttaefni á Stöð 2 Sport 
Þótt enski boltinn verði ekki lengur á Stöð 2 Sport frá og með hausti 2019 verður stöðin ennþá mjög sterk á sviði íþrótta, þar sem flestir réttir hafa nýlega verið endurnýjaðir. Nægir þar að nefna Meistaradeildina, Enska bikarinn, Pepsi deildirnar Spænsku deildina, Ítölsku deildina, Domino‘s deildirnar í körfu, Ameríska fótboltann, Olís deildirnar í handbolta, Formúlu 1 auk fjölda annarra greina. Það jákvæða við þessa breytingu fyrir neytendur er að sóknarfæri skapast til að bjóða aðgang að ofangreindum íþróttaviðburðum á enn betra verði en áður, en SÝN lækkaði sem kunnugt er áskriftarverð umtalsvert í maí síðastliðnum með það að markmiði að koma til móts við og fjölga viðskiptavinum. Einnig tryggja ákvæði í fjölmiðlalögum áskrifendum okkar áfram aðgang að beinum útsendingum enska boltans, óháð því hvaða sjónvarpsstöð heldur á efnisréttinum.

„Við settum fram afar myndarlegt tilboð sem var veruleg hækkun frá því sem við greiðum fyrir enska boltann í dag. Niðurstaðan var hins vegar að ofurtilboð barst úr annarri átt sem engin glóra væri í að jafna. Stöð 2 Sport er eftir sem áður okkar er hlaðin frábæru íþróttaefni. Við höldum okkar striki og gerum íþróttaefni aðgengilegra og ódýrara fyrir íslenska neytendur,“ segir Björn Víglundsson, framkvæmdastjóri Miðla Sýnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner