Fotbolti.net
02.12.19 - 13:52
Elvar Geir Magnússon

Pepe ekki staðið sig nægilega vel á æfingum

Nicolas Pepe var ónotaður varamaður gegn Norwich.

Nicolas Pepe var ónotaður varamaður gegn Norwich.

Canon

Mynd: Getty Images

Nicolas Pepe var á bekknum í 2-2 jafntefli Arsenal gegn Norwich í gær. Daily Mail segir að Freddie Ljungberg, bráðabirgðastjóri Arsenal, hafi ekki verið sáttur við það sem hann sá frá Pepe í æfingavikunni.

Arsenal batt miklar vonir við Pepe eftir að hafa borgað 72 milljónir punda fyrir þennan snögga vængmann þegar hann var keyptur frá Lille.
„Nicolas Pepe er virkilega öflugur leikmaður en ég reyni að fara eftir því sem ég sé á æfingasvæðinu. Ég fylgist með þeirri vinnu sem er framkvæmd á hverjum degi og þannig dæmi ég," segir Ljungberg.

Svíinn lokar þó engum dyrum og segir að Pepe fái tækifæri, eins og allir aðrir, til að sýna hvað hann geti fært liðinu.

Arsenal hefur ekki unnið leik í ensku úrvalsdeildinni síðan snemma í október, 1-0 gegn Bournemouth. Liðið mætir Brighton á fimmtudaginn.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.