Fotbolti.net
03.01.20 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson

Joao Pedro kominn til Watford (Staðfest)

Joao Pedro mátti ekki skipta til Watford fyrir áramót vegna aldurs. Hann varð lögráða í september.

Joao Pedro mátti ekki skipta til Watford fyrir áramót vegna aldurs. Hann varð lögráða í september.

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski framherjinn Joao Pedro er genginn í raðir Watford þrátt fyrir áhuga frá ýmsum stórliðum í Evrópu.
Joao Pedro er 18 ára gamall og kemur úr röðum Fluminense. Hann vakti athygli á sér í vor og festi Watford kaup á honum. Eftir það byrjaði hann að raða inn mörkum og skoraði sjö mörk í fjórum leikjum en síðan þá hefur staðið á markaskoruninni.

Í heildina er Pedro búinn að gera 4 mörk í 24 deildarleikjum en hann skoraði þrjú og lagði eitt upp í fjórum leikjum í Suður-Ameríkubikarnum.

Liverpool og PSG eru meðal félaga sem voru orðuð við framherjann.

Watford er talið greiða tæplega 10 milljónir punda fyrir Joao Pedro. Sú upphæð getur þó hækkað talsvert bæði með árangurstengdum greiðslum og öðrum ákvæðum.

Síðasti leikmaður til að skipta úr Fluminense til Watford er Richarlison. Hann kostaði rúmar 11 milljónir punda og var svo seldur til Everton fyrir 50 milljónir.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.