Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   sun 03. mars 2024 19:54
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Spá Simeone rættist - Girona missteig sig
Alvaro Morata skoraði annað mark Atlético
Alvaro Morata skoraði annað mark Atlético
Mynd: EPA
Alexander Sorloth skoraði þrennu fyrir Villarreal
Alexander Sorloth skoraði þrennu fyrir Villarreal
Mynd: EPA
Girona klúðraði dauðafæri á að saxa forskot Real Madrid niður í fjögur stig í La Liga í dag.

Real Madrid tapaði stigum gegn Valencia í gær við mjög svo umdeildar aðstæður.

Mark Jude Bellingham fékk ekki að standa eftir að hann skoraði rétt eftir lokaflaut Gil Manzano, dómara leiksins. Það gaf Girona tækifæri á að nálgast Madrídinga, en liðið nýtti sér það ekki.

Copete skoraði eina mark Mallorca í 1-0 sigri á Girona og er spútnikliðið því áfram sjö stigum á eftir Real Madrid.

Diego Simeone, þjálfari Atlético Madríd, spáði því á blaðamannafundi í gær að Alvaro Morata myndi skora gegn Real Betis og sú spá rættist.

Atlético vann 2-1 sigur. Heimamenn komust yfir á 8. mínútu eftir að boltinn skoppaði af nokkrum varnarmönnum Betis og í markið.

Alvaro Morata gat tvöfaldað forystuna á 28. mínútu er liðið fékk vítaspyrnu en Rui Silva sá við honum í markinu. Morata var þó enn fullur sjálfstrausts og skoraði áður en hálfleikurinn var úti, eins og Simeone spáði fyrir um.

William Carvalho kom boltanum í netið fyrir Betis þegar tuttugu mínútur voru eftir af leiknum og þar við sat. Atlético er í 4. sæti með 55 stig en Betis í 6. sæti með 42 stig.

Norski sóknarmaðurinn Alexander Sorloth skoraði þá þrennu í 5-1 stórsigri Villarreal á Granada.

Villarreal er í 12. sæti með aðeins 32 stig en Granada í næst neðsta sæti með 14 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Atletico Madrid 2 - 1 Betis
1-0 Rui Silva ('8 , sjálfsmark)
1-0 Alvaro Morata ('28 , Misnotað víti)
2-0 Alvaro Morata ('44 )
2-1 William Carvalho ('62 )

Mallorca 1 - 0 Girona
1-0 Copete ('33 )

Villarreal 5 - 1 Granada CF
1-0 Alexander Sorloth ('7 )
2-0 Alexander Sorloth ('19 )
3-0 Etienne Capoue ('32 )
4-0 Goncalo Guedes ('47 )
5-0 Alexander Sorloth ('66 )
5-1 Theodor Corbeanu ('90 )
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Alaves 0 0 0 0 0 0 0 0
2 Athletic 0 0 0 0 0 0 0 0
3 Atletico Madrid 0 0 0 0 0 0 0 0
4 Barcelona 0 0 0 0 0 0 0 0
5 Betis 0 0 0 0 0 0 0 0
6 Celta 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Espanyol 0 0 0 0 0 0 0 0
8 Getafe 0 0 0 0 0 0 0 0
9 Girona 0 0 0 0 0 0 0 0
10 Las Palmas 0 0 0 0 0 0 0 0
11 Leganes 0 0 0 0 0 0 0 0
12 Mallorca 0 0 0 0 0 0 0 0
13 Osasuna 0 0 0 0 0 0 0 0
14 Vallecano 0 0 0 0 0 0 0 0
15 Real Madrid 0 0 0 0 0 0 0 0
16 Real Sociedad 0 0 0 0 0 0 0 0
17 Sevilla 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Valencia 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Cadiz 38 6 15 17 26 55 -29 33
19 Valladolid 0 0 0 0 0 0 0 0
19 Almeria 38 3 12 23 43 75 -32 21
20 Villarreal 0 0 0 0 0 0 0 0
20 Granada CF 38 4 9 25 38 79 -41 21
Athugasemdir
banner
banner
banner