Íslenska kvennalandsliðið hefur í dag leik í undankeppni HM, sem á að fara fram í Brasilíu á næsta ári.
Stelpurnar okkar hafa aldrei komist í lokakeppni HM og það er klárlega eitthvað sem þær stefna núna að. Riðillinn sem þær lentu í gæti þó vart verið erfiðari.
Stelpurnar okkar hafa aldrei komist í lokakeppni HM og það er klárlega eitthvað sem þær stefna núna að. Riðillinn sem þær lentu í gæti þó vart verið erfiðari.
Riðill Íslands:
Spánn
England
Ísland
Úkraína
Spánn og England eru tvö af sterkustu liðum heims og mættust þau í úrslitaleik Evrópumótsins á síðasta ári. Þar tapaði Ísland öllum sínum leikjum. Spánn er ríkjandi heimsmeistari á meðan England er ríkjandi Evrópumeistari og við byrjum á að mæta þessum tveimur þjóðum á útivelli.
Fyrirkomulagið í undankeppninni er þannig að efsta liðið í riðlinum fer beint í lokakeppni HM en hin liðin þrjú fara í umspil. Öll liðin í riðlinum eru í A-deild Þjóðadeildarinnar og hafa því þannig unnið sér inn þátttökurétt í umspili.
En hvernig virkar umspilið?
Það eru talsvert miklar líkur á því að Ísland fari í umspilið þar sem riðillinn er það erfiður. Í umspilinu verður barist um sjö laus sæti í lokamótinu.
Umspilið skiptist í tvær umferðir og verður leikið heima og að heiman í báðum umferðum.
Liðin sem enda í öðru og þriðja sæti í riðlinum sínum í A-deild fara í leið eitt og byrja á því að mæta liðum úr C-deild í fyrstu umferð. Liðin sem enda í fjórða sæti í riðlunum í A-deild fara í leið tvö og byrja á því að mæta liðum úr B-deild.
Sextán lið komast áfram úr umferð eitt og mætast svo. Liðin úr leið eitt dragast gegn liðum úr leið tvö. Það er því mjög mikilvægt að enda í öðru eða þriðja sæti í riðlinum til að eiga betri möguleika á að komast í lokakeppnina. Segja má að helsta barátta Íslands í riðlinum sé gegn Úkraínu og það eru leikir sem við verðum að byrja á því að vinna.
Það munu átta lið standa uppi sem sigurvegarar í umspilinu en þau sjö lið enduðu með bestan árangur í heildartöflu undankeppninnar komast inn á lokakeppnina. Áttunda sigurliðið í umspilinu, sem var með lakastan árangur í undankeppninni, fer í annað umspil á móti þjóðum úr öðrum heimsálfum.
Leiðin til Brasilíu hefst í kvöld
Leiðin á HM byrjar í kvöld með afar erfiðum leik gegn heimsmeisturum Spánar. Svo fara stelpurnar okkar til Englands. Það er ekki hægt að setja kröfu á að fá mikið út úr þessum leikjum en það væri stór bónus.
Leikirnir gegn Úkraínu í apríl og júní verða hins vegar risastórir upp á það að eiga sem bestan möguleika á að komast í lokakeppni HM. Það er nefnilega, eins og áður kemur fram, mjög mikilvægt að stelpurnar okkar endi í að minnsta kosti þriðja sæti riðilsins.
Athugasemdir




