Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
Oliver: Keflavík tilkynnti mér að ég væri laus
Glódís eftir sögulegan leik: Veit það nú ekki alveg
Karólína Lea: Ég er eins og einhver stolt mamma þegar ég sé hana
Linda Líf eftir fraumraunina: Geggjað að fyrsti landsleikurinn hafi verið sigur
Cecilía: Ég er vön þessu stundum úti
Thelma Karen: Vantaði helminginn af vinkonunum
Alexandra: Alltaf gaman í þau fáu skipti sem það gerist
Steini vonsvikinn: Þetta er að gerast annars staðar
Sandra María: Hún getur allt sem hún vill
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
banner
   þri 03. mars 2026 22:51
Ívan Guðjón Baldursson
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Eimskip
Mynd: KSÍ
Mynd: EPA
Ída Marín Hermannsdóttir fékk tækifæri í byrjunarliði íslenska landsliðsins sem heimsótti heimsmeistarana til Spánar í kvöld í undankeppni fyrir HM 2027.

Lestu um leikinn: Spánn 3 -  0 Ísland

Spánn stóð uppi sem öruggur sigurvegari. Þær unnu 3-0 og voru óheppnar að sigra ekki stærra.

„Þetta eru heimsmeistararnir og við bara gerðum eins og við gátum. Við sýndum þeim að við áttum séns. Við fengum tækifæri og reyndum okkar allra besta, en áfram gakk," sagði þreytt Ída Marín, sem hefur leikið fyrir FH og í bandaríska háskólaboltanum síðustu ár, að leikslokum.

Ída var í landsliðshópnum í fyrsta sinn síðan 2022 og fór beint í byrjunarliðið. Þar fyllti hún í skarð Alexöndru Jóhannsdóttur sem er að glíma við meiðsli og sat á bekknum.

„Það er svo mikill heiður að vera aftur í hópnum og ég er mjög glöð að mér var treyst fyrir þessu. Það er ekki á hverjum degi sem maður fær að vera í byrjunarliðinu á móti heimsmeisturunum. Þetta var bara geðveikt."

Ísland heimsækir evrópumeistara Englands í næstu umferð í undankeppni HM og er Ída spennt.

„Við fengum tækifæri til að skora í kvöld og ég held að allt geti gerst í svona leikjum. Við reynum okkar besta!"

   03.03.2026 20:37
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn

Slapp
banner