Fotbolti.net
03.04.21 - 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Stuðningsfólk hvaða félags eru ánægðast með stjóra sinn?

Carlo Ancelotti og Jurgen Klopp.

Carlo Ancelotti og Jurgen Klopp.

Canon

Mynd: Getty Images

Vefmiðillinn The Athletic framkvæmdi á dögunum nokkrar kannanir á meðal stuðningsmanna félaga í ensku úrvalsdeildinni.
Í einni af þessari könnunum var spurt að því hvort stuðningsfólk væri ánægðast með stjóra sinn.

Spurningin var: 'Verður þú ánægð/ur ef núverandi knattspyrnustjóri verði áfram við stjórnvölinn á þessum tímapunkti á næsta ári?"

Það var þannig að Carlo Ancelotti, stjóri Everton, er með mest traust frá stuðningsfólki og þar næst kemur nágranni hans, Jurgen Klopp, þó það hafi ekki gengið vel hjá Liverpool á tímabilinu.

Minnst ánægja er hjá stuðningsfólki Newcastle með Steve Bruce og næst minnst ánægja er hjá Tottenham stuðningsfólki með Jose Mourinho.

Hægt er að sjá niðurstöðuna í heild sinni hér að neðan og hægt er að lesa grein The Athletic hérna.

Stuðningsfólk hvaða félags eru ánægðast með stjóra sinn?
Canon

Mynd: The Athletic

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.