Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 03. júní 2022 11:21
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Heimasíða KSÍ 
KSÍ framlengir við Þorstein Halldórs
Icelandair
Þorsteinn Halldórsson.
Þorsteinn Halldórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorsteinn Halldórsson hefur skrifað undir nýjan samning um þjálfun kvennalandsliðsins til ársins 2026 hið minnsta.

Þorsteinn tók við sem þjálfari liðsins í byrjun árs 2021 og undir hans stjórn leikur íslenska liðið í úrslitakeppni EM 2022 á Englandi í sumar og er jafnframt í góðri stöðu í sínum riðli í undankeppni HM 2023.

Sem fyrr segir gildir samningurinn til ársins 2026, en er með framlengingarákvæðum í tengslum við HM 2027.

„A landslið kvenna hefur verið að gera virkilega góða hluti og við vildum gera okkar til að tryggja áframhald á þróun liðsins næstu ár og góðu gengi þess undir stjórn Steina. Ég er mjög ánægð með samninginn og hlakka mikið til framhaldsins með þessu flotta liði og öfluga þjálfarateymi," segir Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, við heimasíðu sambandsins.

Sjálfur lýsir Þorsteinn yfir ánægju með framlenginguna.

„Ég hef haft mikla ánægju af þessu starfi síðan ég tók við. Leikmennirnir hafa gert frábæra hluti og ég er með góðan hóp í höndunum, og ekki síður finnst mér síðustu ár hafa komið í ljós hvað það er mikil og góð breidd í A landsliði kvenna, fullt af góðum leikmönnum til að velja úr. Umgjörðin sem við störfum í er fyrsta flokks og ég hlakka mjög til þess að vinna áfram að þessu verðuga verkefni," segir Þorsteinn.

Evrópumótið verður haldið á Englandi í sumar og Ísland mætir Belgíu í fyrsta leik sínum á mótinu þann 10. júlí. Frakkland og Ítalía eru einnig í riðlinum.
Athugasemdir
banner
banner
banner