Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 03. júlí 2020 12:02
Magnús Már Einarsson
Jói Berg gæti spilað sinn fyrsta leik í hálft ár
Íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson gæti komið við sögu þegar Burnley mætir Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.

Sean Dyche, stjóri Burnley, staðfesti þetta á fréttamannafundi í dag.

Meiðsli hafa sett stórt strik í reikninginn hjá Jóhanni Berg á þessu tímabili.

Síðasti leikur hans í ensku úrvalsdeildinni var á Nýársdag gegn Aston Villa eða fyrir hálfu ári síðan.

Jóhann Berg er núna klár á nýjan leik og gæti spilað í leiknum á sunnudag.
Athugasemdir
banner