Fotbolti.net
03.07.20 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Þrír leikmenn aftur inn í myndina hjá Watford

Andre Gray.

Andre Gray.

Canon

Mynd: Getty Images

Andre Gray, Nathaniel Chalobah og Domingos Quina eru komnir aftur inn í myndina hjá Watford fyrir leikinn gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Þeir voru ekki í hóp síðasta sunnudag gegn Southampton eftir að hafa brotið reglur stjórnvalda í Bretlandi um reglur vegna kórónuveirufaraldursins með því að halda teiti.

Leikmennirnir hafa beðist afsökunar á gjörðum sínum.

Gray hélt afmælisteiti heima hjá sér og mættu Chalobah og Quina í veisluna hjá honum.

Málið hefur verið til rannsóknar innanbúðar hjá Watford, en þeir eru allir aftur komnir inn í myndina fyrir helgina.

Watford hefur aðeins náð í eitt stig í síðsustu þremur leikjum sínum og er í bullandi fallbaráttu.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.