Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 03. ágúst 2022 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
Everton er að stela Onana frá West Ham
Mynd: EPA

West Ham náði samkomulagi við Lille um kaupverð á miðjumanninum efnilega Amadou Onana. Hamrarnir hefðu greitt 33 milljónir punda fyrir hann en Onana vill frekar fara til Everton.


Everton er sagt hafa jafnað 33 milljóna tilboðið í dag og mun Onana skrifa undir samning við félagið á næstu dögum.

Onana verður fjórði leikmaðurinn til að ganga í raðir Everton í sumar eftir Dwight McNeil, James Tarkowski og Ruben Vinagre. 

Þetta er svekkjandi fyrir Hamrana sem eru aðeins búnir að fá Flynn Downes inn á miðjuna í sumar eftir að hafa misst Mark Noble sem lagði skóna á hilluna. Þeir hafa verið að eltast við nokkra miðjumenn og virtist Onana vera við það að detta inn þar til Everton skarst í leikinn.


Athugasemdir
banner
banner