Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 03. ágúst 2022 20:34
Ívan Guðjón Baldursson
Yfirlýsing frá Brighton: Ekki búnir að samþykkja tilboð Chelsea
Mynd: EPA

Brighton er búið að gefa frá sér yfirlýsingu sem segir að félagið sé ekki búið að samþykkja kauptilboð frá Chelsea í vinstri bakvörðinn Marc Cucurella.


Fabrizio Romano, Sky Sports og margir aðrir fjölmiðlar hafa keppst við að greina frá því að Chelsea og Brighton komust að samkomulagi um kaupverð fyrir Cucurella - 52,5 milljónir punda.

Brighton hafnar þessu en á sama tíma er nokkuð augljóst að aðilar eru ekki langt frá samkomulagi, þó það sé aðeins munnlegt. Cucurella er í það minnsta með bókaða læknisskoðun hjá Chelsea á næstu dögum.

Áhugi Brighton á ungstirninu Levi Colwill, sem er samningsbundinn Chelsea, gæti flækt þessi félagsskipti. 

Aðilar nátengdir samningsviðræðunum hafa staðfest við Sky Sports að samkomulag sé í höfn þrátt fyrir þessa yfirlýsingu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner