Fotbolti.net
03.09.22 - 14:57
Aksentije Milisic
Ítalski boltinn

Ítalía: Jovic klúðraði vítaspyrnu í jafnteflisleik gegn Juventus

Jovic klikkaði á vítaspyrnu.

Jovic klikkaði á vítaspyrnu.

Canon

Mynd: Heimasíða Fiorentina

Fiorentina 1 - 1 Juventus
0-1 Arkadiusz Milik ('9 )
1-1 Christian Kouame ('29 )
1-1 Luka Jovic ('44 , Misnotað víti)

Fyrsti leikur dagsins í Serie A deildinni á Ítalíu var viðureign Fiorentina og Juventus í Flórens.

Gestirnir frá Tórínó byrjuðu betur og var það markahrókurinn Arkadiusz Milik sem skoraði sitt annað mark fyrir Juventus en hann kom til liðsins seint í félagsskiptaglugganum.

Filip Kostic átti þá fast skot og var Milik réttur maður á réttum stað og kom hann knettinum yfir línuna.

Tuttugu mínútum síðar jafnaði Christian Kouame metin fyrir þá fjólubláu eftir flotta skyndsókn hjá heimamönnum.

Undir lok fyrri hálfleiks gat Serbinn Luka Jovic komið Fiorentina í forystu en hann klúðraði vítaspyrnu. Mattia Perin varði þá spyrnuna hans í stöngina.

Ekkert var skorað í síðari hálfleiknum og niðurstaðan því 1-1 jafntefli.

Juventus er með níu stig eftir fimm leiki en Fiorentina er með sex.

Á eftir eru tveir stórleikir en AC Milan og Inter eigast við í grannaslag og í kjölfarið mætast Lazio og Napoli í Rómarborg.

Perin varði.

Perin varði.

Canon

Mynd: Getty Images

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Roma5+1113
2Inter5+713
3Lazio5+513
4Cagliari5+312
5Milan5+611
6Frosinone5+510
7Juventus5+410
8Como5+310
9Napoli5+17
10Sassuolo507
11Atalanta5-26
12Lecce5-56
13Udinese5-34
14Torino5-34
15Parma5-34
16Monza5-44
17Fiorentina5-64
18Bologna5-32
19Genoa5-71
20Venezia5-90
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.