„Byrjaði að spýtast út blóð og þá þurfti ég að horfa frá"
Búinn í aðgerð eftir opið beinbrot

'Ég var svo fullur af adrenalíni að það var ekki eins og ég væri alveg að deyja úr sársauka.'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mætti í Lionel Messi treyju til leiks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Þetta var skemmtilegur leikur, mikið fram og til baka'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Auðvitað er þetta svekkjandi, en ég nenni ekki að fókusa á neikvæðu hlutina'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Ég get ekki neitað fyrir að maður er stundum ekkert sáttur með að vera ekki í liðinu'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oliver Ekroth og Sveinn Gísli spiluðu saman í hjarta varnarinnar gegn KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrirliðinn Oliver Ekroth tók utan um Svein Gísla á meðan Rúnar Pálmarsson skoðaði höndina.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ég horfi fram á við og mun fylgjast með strákunum klára þetta

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Með Íslandsmeistaraskjöldinn í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Ég var svo fullur af adrenalíni að það var ekki eins og ég væri alveg að deyja úr sársauka.'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er svekkjandi, leiðinlegt og allt það. En þetta er allavega ekki löppin á mér, heldur höndin, maður getur hugsað sér við það. En auðvitað leiðinleg tímasetning," segir Sveinn Gísli.
„Það er smá sársauki í gangi og maður tekur verkjalyf þegar þess þarf. Fyrstu dagarnir eru vondir og nóttin í gær var helvíti slæm. Á meðan maður tekur lyfin á réttum tíma þá er þetta ekki alveg alslæmt."
Tvær plötur og skrúfur í höndina
Báðar pípurnar í vinstri hönd Sveins Gísla brotnuðu þegar hann lenti á grasinu.
„Ég þarf ekki að vera rúmliggjandi, höndin er í fatla. en ég reyni að hvíla mig. Það voru settar tvær plötur og einhverjar skrúfur til að setja þetta allt saman."
„Ég losna við gifsið eftir tvær vikur og á meðan ég hlífi hendinni þá myndi ég fara að hjóla tiltölulega snemma held ég. Ég þarf bara að sjá til."
Bara óheppni
Hefur þú horft aftur á atvikið?
„Ég er búinn að sjá þetta aftur. Þetta er bara eins og gengur og gerist, maður ósjálfrátt setur höndina undir sig og þetta fer svona. Þetta er bara óheppni. Maður er bara agressífur, kannski um of, og þá getur svona gerst."
Varstu sáttur með spilamennskuna í leiknum?
„Já, ég var það. Við vorum búnir að halda markinu hreinu fram að þessu, þetta var skemmtilegur leikur, mikið fram og til baka. Ég var alveg sáttur með mig og strákana, leiðinlegt að KR-ingarnir náðu að jafna í lokin. Ég spilaði ágætis leik fram að þessu."
Höndin í hakki
Fannstu fyrir sársauka þegar þú lentir?
„Ég fann ekki mikinn sársauka, panikkaði bara aðeins þegar ég sá að það fossblæddi úr höndinni á mér og hún var öll í einhverju hakki. Um leið og Rúnar sjúkraþjálfari kemur og setur þrýsting á þetta þá var svo mikið adrenalín í gangi að ég var meira bara í sjokki en að þetta væri vont. Sársaukinn kikkar svo inn aðeins seinna."
Full löng bið eftir sjúkrabíl
Sveinn Gísli fór af velli og við tók bið eftir sjúkrabíl.
„Sjúkrabíllinn var svolítið lengi á leiðinni, ég var ekkert rosalega sáttur við það. Ég veit ekki af hverju það var, veit ekki hvort það eigi að vera sjúkrabíll á öllum leikjum eða hvað, en það væri ekki vitlaust, það eru alltaf sjúkrabílar í Evrópuleikjum hjá okkur og ég sé ekki af hverju það ætti ekki að vera staðalbúnaður á svona leik."
„Rúnar fylgdi mér inn og kærasta og vinir biðu svo með mér. Ég var svo fullur af adrenalíni að það var ekki eins og ég væri alveg að deyja úr sársauka. Mér var líka boðið alls kyns góðgæti, m.a. af KR-ingum, til að halda sykrinum uppi."
Var fljótur að líta frá
Ertu með augnabliksmynd af höndinni af þér í heilanum, heldur þú að það sé eitthvað sem þú nærð að losa þig við?
„Ég var fljótur að líta frá, það er kannski best í þessu að ég hef handleggsbrotnað næstum því svona illa á sömu hendi áður. Maður þekkir það að á meðan maður er ekki að horfa á höndina þá kikkar þetta ekki almennilega inn. En ég man vel eftir þessu, það byrjaði að spýtast út blóð og þá þurfti ég að horfa frá. Ég held að beinið hafi ekki stungið út, en það náði að stinga húðina allavega, veit ekki hvort að pípan skaust svo aftur inn."
„Ég ætla ekki að útiloka neitt"
Þú getur losnað við gifsið eftir tvær vikur, hvernig er svo samtalið með framhaldið, hvenær gætir þú í besta falli snúið aftur á völlinn?
„Það verður að koma í ljós. Ég þarf að passa vel upp á höndina í sex vikur í það minnsta., fékk þær upplýsingar frá lækni í dag. Ég þori ekki alveg að segja, ég verð mjög slakur í sex vikur, svo sjáum við til."
Lokaumferðin í Bestu fer fram 24./25. október. Ertu búinn að útiloka að ná þeim leik?
„Ég ætla ekki að útiloka neitt, það þarf einhver að segja mér að sleppa því að mæta sjálfur. Við þurfum bara að sjá til," segir Sveinn Gísli brattur.
Sveinn Gísli vinnur hjá Maul meðfram fótboltanum en getur ekki farið með matarsendingar næstu vikurnar.
„Ég má voða lítið gera, má varla halda á kaffibollta með vinstri þessar sex vikur. Ég mun líklega reyna fara niður í Vík og hjóla þar eitthvað til að drepa tímann."
Ógeðslega svekkjandi
Sveinn Gísli kom inn í liðið hjá Víkingi fyrir leikinn gegn KR. Gunnar Vatnhamar, lykilmaður í liðinu síðustu árin, var seldur til Vejle í Danmerkur og stærra hlutverk var að opnast fyrir Svein Gísla.
„Það er ógeðslega svekkjandi. Maður er alltaf að reyna berjast fyrir sæti í liðinu og þetta var helvíti góður séns að sýna að maður getur spilað. En ég nenni ekki að velta mér of mikið upp úr því. Auðvitað er þetta svekkjandi, en ég nenni ekki að fókusa á neikvæðu hlutina. Ég horfi fram á við og mun fylgjast með strákunum klára þetta."
Varstu pirraður að spila ekki meira í sumar?
„Ég held að flestallir leikmenn geta verið sammála um að þeir eru pirraðir þegar spila ekki. En það er bara staðan, við erum með góða leikmenn í öllum stöðum, þjálfarinn velur bara liðið og maður verður að sætta sig við það. Ég get ekki neitað fyrir að maður er stundum ekkert sáttur með að vera ekki í liðinu. Ég hef samt alveg fengið að spila eitthvað," segir Sveinn Gísli sem hefur byrjað sex leiki í Bestu deildinni í sumar og þrjá leiki í Evrópukeppni.

Mætti í Lionel Messi treyju til leiks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Þetta var skemmtilegur leikur, mikið fram og til baka'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Auðvitað er þetta svekkjandi, en ég nenni ekki að fókusa á neikvæðu hlutina'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Ég get ekki neitað fyrir að maður er stundum ekkert sáttur með að vera ekki í liðinu'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oliver Ekroth og Sveinn Gísli spiluðu saman í hjarta varnarinnar gegn KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrirliðinn Oliver Ekroth tók utan um Svein Gísla á meðan Rúnar Pálmarsson skoðaði höndina.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ég horfi fram á við og mun fylgjast með strákunum klára þetta

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Með Íslandsmeistaraskjöldinn í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
