Fotbolti.net
03.10.23 - 21:26
Ívan Guðjón Baldursson

Championship: Nýliðar Ipswich á toppinn

Championship: Nýliðar Ipswich á toppinn
Canon

Mynd: Getty Images

Það fóru sex leikir fram í ensku Championship deildinni í dag þar sem Ipswich Town lyfti sér í toppsætið með þægilegum sigri gegn Hull City.
Ipswich er á ótrúlegu skriði þar sem liðið er afar óvænt komið með 25 stig eftir 10 umferðir. Ipswich lék í ensku C-deildinni, League One, á síðustu leiktíð og endaði í öðru sæti þar til að tryggja sér þátttöku í Championship.

Stuart Armstrong skoraði þá eina mark leiksins í sigri Southampton á útivelli gegn Stoke City á meðan John Swift gerði sigurmark West Brom gegn Sheffield Wednesday.

Southampton og West Brom eru í efri hluta deildarinnar ásamt Birmingham og Millwall sem unnu einnig leiki sína í dag.

Middlesbrough vann þá þriðja leikinn sinn í röð eftir slaka byrjun á tímabilinu, og nálgast efri hlutann óðfluga.

Birmingham 4 - 1 Huddersfield
1-0 Siriki Dembele ('3 )
2-0 Koji Miyoshi ('23 )
3-0 Siriki Dembele ('64 )
4-0 Jordan James ('92 )
4-1 Michal Helik ('95)

Ipswich Town 3 - 0 Hull City
1-0 Wes Burns ('5 )
2-0 Conor Chaplin ('41 )
3-0 Marcus Harness ('65 )

Middlesbrough 2 - 0 Cardiff City
1-0 Isaiah Jones ('56 )
2-0 Emmanuel Latte Lath ('84 )

Plymouth 0 - 2 Millwall
0-1 Zian Flemming ('59 )
0-2 George Saville ('97)

Stoke City 0 - 1 Southampton
0-1 Stuart Armstrong ('41 )

West Brom 1 - 0 Sheffield Wed
1-0 John Swift ('13 )
Championship: Nýliðar Ipswich á toppinn
Canon

Mynd: EPA

Championship: Nýliðar Ipswich á toppinn
Canon

Mynd: Getty Images

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Swansea11+823
2West Ham11+1822
3Middlesbrough11+622
4Birmingham11+920
5West Brom11+320
6Stoke City11+219
7Southampton11+1117
8Wolves10+317
9QPR11+317
10Blackburn11+115
11Sheffield Utd11+115
12Millwall11015
13Portsmouth10014
14Wrexham11-114
15Bolton11-314
16Bristol City11-314
17Charlton Athletic11-514
18Lincoln City11-1012
19Cardiff City11+111
20Watford11-911
21Norwich11-49
22Burnley11-58
23Derby County11-116
24Preston NE11-154
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.