Fotbolti.net
03.11.19 - 13:29
Ívan Guðjón Baldursson

Harry Kane ekki með í dag vegna veikinda

Harry Kane ekki með í dag vegna veikinda
Canon

Mynd: Getty Images

Enskir fjölmiðlar keppast við að greina frá því að sóknarmaðurinn öflugi Harry Kane verði ekki með í leikmannahópi Tottenham gegn Everton í dag vegna veikinda.
Kane hefur verið meðal bestu leikmanna Tottenham undanfarin ár og er kominn með tíu mörk í öllum keppnum á þessari leiktíð.

Ryan Sessegnon er búinn að ná sér eftir meiðsli og er í leikmannahópi Tottenham. Hann gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið eftir að hafa skrifað undir samning í sumar.

Leikurinn gegn Everton er mikilvægur en bæði þessi lið hafa verið að spila langt undir getu í haust.

Tottenham er í 13. sæti úrvalsdeildarinnar sem stendur, með tveimur stigum meira en Everton sem situr í 17. sæti.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.