Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 03. nóvember 2022 10:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hákon Arnar hljóp langmest af öllum leikmönnum vallarins
Hákon Arnar Haraldsson.
Hákon Arnar Haraldsson.
Mynd: Getty Images
Hákon Arnar Haraldsson varð í gær fjórði Íslendingurinn til að skora í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Skagamaðurinn efnilegi var á skotskónum þegar FC Kaupmannahöfn gerði 1-1 jafntefli við Borussia Dortmund á Parken.

Hákon var valinn maður leiksins, en það var ekki bara markið sem skilaði honum því. Hann var gríðarlega vinnusamur fyrir sitt lið og barðist mikið.

Sparkspekingurinn Hjörvar Hafliðason birtir hlaupatölfræðina úr leiknum á Twitter og þar sést að Hákon hljóp langmest af öllum leikmönnum vallarins.

Hann hljóp tæpa 14 kílómetra í gegnum leikinn sem er gríðarlega mikið.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner