Fotbolti.net
03.11.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Moyes: Grealish getur snúið aftur

Moyes: Grealish getur snúið aftur
Canon

Mynd: EPA

David Moyes þjálfari Everton var stoltur af lærlingum sínum eftir sigur á útivelli gegn Newcastle í gærkvöldi.
England: Newcastle tapaði aftur gegn Everton
TENGT EFNI

England: Newcastle tapaði aftur gegn Everton

Everton vann þar með tvo leiki gegn Newcastle á fjórum dögum, eftir að hafa sigrað á heimavelli í deildabikarnum fyrir helgi.

Thierno Barry skoraði eina mark leiksins í gær og verðskuldaði Everton sigurinn.

„Á löngum köflum var þetta besta frammistaða okkar á tímabilinu. Við gerðum sjálfum okkur erfitt fyrir með að klúðra góðum færum og það var mikilvægt að skora fyrsta markið," sagði Moyes, en lokatölur urðu 0-1. „Ég er ótrúlega stoltur af framlagi strákanna. Við erum með þunnan hóp en strákarnir eru að lyfta Grettistaki þetta tímabilið. Vonandi geta þeir haldið þessu áfram.

„Það jákvæðasta er að við erum að skapa mikið af góðum færum, það skiptir öllu máli, við hefðum getað unnið talsvert stærra í dag. Við viljum klifra upp stöðutöfluna."


Everton er í sjöunda sæti með 13 stig eftir 9 umferðir og tekur á móti nýliðum Coventry í síðasta leik fyrir landsleikjahlé.

Moyes hrósaði Jordan Pickford markverði og markaskoraranum Barry að leikslokum áður en hann svaraði spurningum um Jack Grealish, sem var utan hóps annan leikinn í röð eftir að hafa misst af æfingu.

„Jack er ekki liðtækur þessa stundina og við eigum eftir að meta stöðuna betur til að ákvarða hvenær hann verður liðtækur. Ég ætla ekki að segja neitt meira um þetta mál. Auðvitað getur hann ennþá snúið aftur í hópinn."
Moyes: Grealish getur snúið aftur
Canon

Mynd: Everton

Moyes: Grealish getur snúið aftur
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.