Fotbolti.net
03.12.19 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Í fyrsta sinn sem Bayern tapar eftir að Müller skorar

Í fyrsta sinn sem Bayern tapar eftir að Müller skorar
Canon

Mynd: Getty Images

FC Bayern tapaði óvænt á heimavelli gegn Bayer Leverkusen um helgina í fyrsta tapleik Hans-Dieter Flick við stjórnvölinn.
Leon Bailey skoraði fyrsta mark leiksins og jafnaði Thomas Müller metin á 34. mínútu. Mínútu síðar kom Bailey sínum mönnum aftur yfir og reyndist það sigurmarkið, þrátt fyrir gífurlegan sóknarþunga Bæjara í seinni hálfleik.

Skemmtileg staðreynd leit dagsins ljós eftir lokaflautið. Þetta var fyrsta tap FC Bayern í leik sem Thomas Müller skorar í.

Müller hafði skorað í 87 leikjum hjá Bayern. 82 þeirra lauk með sigri og 5 með jafntefli. Þetta var leikur númer 88 og í fyrsta sinn sem hann skorar og tapar með félagsliðinu.

Bayern er í fjórða sæti þýsku deildarinnar, fjórum stigum eftir toppliði Borussia Mönchengladbach.

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern8+1918
2Dortmund8+818
3Freiburg8+816
4RB Leipzig8+1115
5Werder8+315
6Leverkusen8+213
7Elversberg8013
8Frankfurt8-511
9Mainz8010
10Augsburg8+39
11Stuttgart8-19
12Hoffenheim8-29
13Köln8-39
14Paderborn8-39
15Hamburger8-129
16Union Berlin8-127
17Schalke 048-56
18Gladbach8-114
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.