Fotbolti.net
03.12.24 - 23:08
Brynjar Ingi Erluson

Spánn: Barcelona valtaði yfir Mallorca í seinni hálfleik

Raphinha skoraði tvö mörk fyrir Barcelona

Raphinha skoraði tvö mörk fyrir Barcelona

Canon

Mynd: Getty Images

Mallorca 1 - 5 Barcelona
0-1 Ferran Torres ('12 )
1-1 Vedat Muriqi ('43 )
1-2 Raphinha ('56 , víti)
1-3 Raphinha ('74 )
1-4 Frenkie de Jong ('79 )
1-5 Pau Victor ('84 )
Topplið Barcelona er komið aftur með fjögurra stiga forystu á toppi La Liga eftir að hafa valtað yfir Real Mallorca, 5-1, á Majorca í kvöld.

Nóvembermánuður var afhroð fyrir Börsunga sem höfðu annars verið frábærir fyrstu mánuðina á tímabilinu. Hansi Flick, þjálfari Barcelona, var létt að nóvember væri lokið því hann lofaði því að desember yrði betri og fer það ágætlega vel af stað.

Ferran Torres kom Börsungum á bragðið eftir hræðileg varnarmistök í teig Mallorca en heimamenn náðu inn jöfnunarmarki er Vedat Muriqi skoraði af stuttu færi eftir skyndisókn.

Í síðari hálfleik tóku Barcelona-menn algerlega yfir leikinn. Raphinha skoraði úr víti á 56. mínútu og gerði annað mark sitt á 74. mínútu eftir geggjaða utanfótarsendingu frá Lamine Yamal.

Frenkie De Jong skoraði fjórða markið úr miðjum teignum á 79. mínútu áður en Pau Victor rak síðasta naglann í kistuna aðeins fimm mínútum síðar.

Barcelona er komið með 37 stig, fjórum stigum á undan Real Madrid sem er í öðru sæti. Mallorca er í 6. sæti með 24 stig.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona10+2927
2Atletico Madrid10+1225
3Real Madrid10+1524
4Betis10+220
5Real Sociedad10+119
6Sevilla10017
7Alaves10+312
8Athletic9+312
9Celta10+312
10Villarreal10+112
11Deportivo10011
12Osasuna10-1011
13Racing Santander10-1111
14Levante10-310
15Elche10-310
16Vallecano9-89
17Getafe10-109
18Espanyol10-28
19Valencia10-106
20Malaga10-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.