Fotbolti.net
04.01.20 - 17:13
Ívan Guðjón Baldursson

Spánn: Real Madrid tók Getafe í kennslustund

Spánn: Real Madrid tók Getafe í kennslustund
Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid var rétt í þessu að taka yfir toppsæti spænsku deildarinnar með sigri á erfiðum útivelli Getafe.
Heimamenn voru betri í fyrri hálfleik en eina markið kom eftir aukaspyrnu. Markvörðurinn David Soria hljóp út í fyrirgjöfina, rakst í menn í teignum og endaði á að fá boltann í sig. Þaðan lak knötturinn í netið.

Seinni hálfleikurinn var jafnari þar sem gestirnir frá Madríd fengu betri færi og tvöfaldaði varnarjaxlinn Raphael Varane forystuna með skalla eftir aukaspyrnu Toni Kroos.

Luka Modric gerði svo endanlega út um leikinn í uppbótartíma þegar hann skoraði eftir skyndisókn. Federico Valverde var einn á móti markmanni en ákvað að leggja boltann frekar til Modric sem skoraði auðveldlega.

Real er með eins stigs forystu á Barcelona í toppbaráttunni en Börsungar eiga nágrannaslag við Espanyol í kvöld. Þetta var annar tapleikur Getafe í röð og er liðið í sjöunda sæti, tveimur stigum frá Meistaradeildinni.

Leikmenn Getafe geta kvartað sárann undan öllum þeim marktækifærum sem fóru forgörðum í dag.

Getafe 0 - 3 Real Madrid
0-1 David Soria ('34, sjálfsmark)
0-2 Raphael Varane ('53)
0-3 Luka Modric ('96)

Valencia hafði þá betur gegn Eibar í fyrri leik dagsins. Maximiliano Gomez gerði eina mark leiksins í fyrri hálfleik, þegar hann skallaði fyrirgjöf Daniel Wass í netið.

Leikurinn var leiðinlegur og skoruðu heimamenn úr eina marktækifæri sínu sem rataði á rammann.

Gestirnir reyndu að jafna en það tókst ekki og er Valencia í sjötta sæti eftir sigurinn, einu stigi frá Meistaradeild. Eibar er fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Valencia 1 - 0 Eibar
1-0 Maximiliano Gomez ('27)
Rautt spjald: Paulo Oliveira, Eibar ('91)

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona10+2927
2Atletico Madrid10+1225
3Real Madrid10+1524
4Betis10+220
5Real Sociedad10+119
6Sevilla9-214
7Alaves10+312
8Athletic9+312
9Celta10+312
10Villarreal10+112
11Deportivo10011
12Osasuna9-811
13Racing Santander10-1111
14Levante10-310
15Elche10-310
16Vallecano9-89
17Getafe10-109
18Espanyol10-28
19Valencia10-106
20Malaga10-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.