Amorim gæti stigið frá borði ef slæmt gengi Man Utd heldur áfram - Bayern ætlar ekki að bjóða Sane hærri samning
   lau 04. febrúar 2023 16:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þýskaland: Haller skoraði sitt fyrsta mark eftir veikindin

Sebastian Haller er maður dagsins í þýska boltanum en hann skoraði í stórsigri Dortmund gegn Freiburg.


Staðan var 1-1 í hálfleik en Freiburg missti mann af velli eftir aðeins 17. mínútna leik þegar Kiliann Sildillia fékk tvö gul spjöld á tveimur mínútum.

Karim Adeyemi kom Dortmund yfir strax í upphafi síðari hálfleik og þá var komið að Haller. Hann skallaði fyrirgjöf eftir hornspyrnu frá Raphael Guerreiro í netið aðeins nokkrum mínútum síðar.

Markið hjá Haller má sjá hér

Þetta er fyrsta mark hans í mótsleik eftir að hann kom til baka eftir veikindi en hann hefur tekið þátt í undanförnum leikjum. Hann var í fyrsta sinn í byrjunarliðinu í dag síðan hann snéri aftur þann 10. janúar.

Dortmund bætti tveimur mörkum við áður en leiknum lauk en Guerreiro lagði bæði upp.

Union Berlin er á toppi deildarinnar eftir 2-1 sigur á Mainz. Bayern á leik til góða gegn Wolfsburg á morgun.

Úrslit dagsins

Borussia D. 5 - 1 Freiburg
1-0 Nico Schlotterbeck ('25 )
1-1 Lucas Holer ('45 )
2-1 Karim Adeyemi ('48 )
3-1 Sebastien Haller ('51 )
4-1 Julian Brandt ('69 )
5-1 Giovanni Reyna ('82 )
Rautt spjald: Kiliann Sildillia, Freiburg ('17)

Union Berlin 2 - 1 Mainz
1-0 Kevin Behrens ('32 )
1-1 Marcus Ingvartsen ('78 , víti)
2-1 Jordan Siebatcheu ('84 )

Koln 0 - 0 RB Leipzig

Eintracht Frankfurt 3 - 0 Hertha
1-0 Randal Kolo Muani ('21 , víti)
2-0 Randal Kolo Muani ('28 )
3-0 Aurelio Buta ('90 )

Bochum 5 - 2 Hoffenheim
1-0 Philipp Hofmann ('22 )
2-0 Philipp Forster ('30 )
3-0 Takuma Asano ('40 )
3-1 Christoph Baumgartner ('49 )
4-1 Erhan Masovic ('69 )
4-2 Munas Dabbur ('77 )
5-2 Moritz Broschinski ('83 )


Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 33 24 7 2 95 32 +63 79
2 Leverkusen 33 19 11 3 70 41 +29 68
3 Eintracht Frankfurt 33 16 9 8 65 45 +20 57
4 Freiburg 33 16 7 10 48 50 -2 55
5 Dortmund 33 16 6 11 68 51 +17 54
6 Mainz 33 14 9 10 53 41 +12 51
7 RB Leipzig 33 13 12 8 51 45 +6 51
8 Werder 33 13 9 11 50 56 -6 48
9 Stuttgart 33 13 8 12 61 51 +10 47
10 Gladbach 33 13 6 14 55 56 -1 45
11 Augsburg 33 11 10 12 34 49 -15 43
12 Wolfsburg 33 10 10 13 55 54 +1 40
13 Union Berlin 33 9 10 14 33 50 -17 37
14 St. Pauli 33 8 8 17 28 39 -11 32
15 Hoffenheim 33 7 11 15 46 64 -18 32
16 Heidenheim 33 8 5 20 36 60 -24 29
17 Holstein Kiel 33 6 7 20 49 77 -28 25
18 Bochum 33 5 7 21 31 67 -36 22
Athugasemdir
banner