,,Ekkert sem segir að þeir geti ekki verið í sama liðinu"
'Það að vísu gæti breyst ef það verður einhver sala á leikmönnum hjá okkur' - Gabríel Snær Gunnarsson er sterklega orðaður við Elfsborg í Svíþjóð.
Böðvar Böðvarsson gekk í dag í raðir ÍA en hann kemur frá uppeldisfélaginu FH. Böðvar gerir tveggja ára samning við Skagamenn. Hann er fjórði leikmaðurinn sem IA fær í sínar raðir í vetur en áður höfðu þeir Gísli Eyjólfsson, Rafael Máni Þrastarson og Guðmundur Þórarinsson skrifað undir á Akranesi.
Fótbolti.net ræddi við þjálfara liðsins, Lárus Orra Sigurðsson, um komu Böðvars.
Fótbolti.net ræddi við þjálfara liðsins, Lárus Orra Sigurðsson, um komu Böðvars.
„Það er frábært að fá Bödda. Það sem við settum upp með þegar við fórum inn í þetta 'off-season' var að bæta við leikmönnum sem myndu styrkja hópinn okkar verulega. Við vildum fá leikmenn úr þessari umtöluðu efstu hillu; gæðaleikmenn með reynslu, leikmenn sem hafa ekki bara gæði heldur líka karakter og skapgerð sem passar inn í það sem við erum að gera hérna og Böddi tikkar inn í öll þessi box," segir Lárus Orri.
Finna fyrir því að það er auðveldara að fá leikmenn
Er þetta sama söluræðan alltaf, notar þú sömu orðin á Gísla, Gumma Tóta og Bödda og þau virka?
„Fótbolti er pínu ruglaður að því leytinu til að annað hvort ertu að peppa menn upp eða halda þeim á jörðinni. Þetta virðist vera eins með þennan blessaða leikmannamarkað, annað hvort vill enginn koma til þín eða allir koma til þín. Við finnum alveg fyrir því að það er auðveldara fyrir okkur að fá leikmenn til okkar."
Ekkert sem segir að Böddi og Vall geti ekki verið báðir inn á
Það er augljós bein samkeppni við Böðvar í leikmannahópi ÍA, Johannes Vall hefur verið vinstri bakvörður liðsins síðustu ár. Hvernig selur þú honum að koma í ÍA?
„Við seljum honum allt verkefnið, hvað við erum að gera og hvað við ætlum okkur að gera. Þegar hann sér leikmennina sem við erum þegar búnir að fá og hvernig hópurinn er orðinn, þá er það auðveldari sala."
„Varðandi vinstri bakvarðarstöðuna þá erum við að leitast eftir því að það verði góð samkeppni í öllum stöðum hjá okkur. Johannes Vall getur spilað annars staðar líka, hann er mjög fínn á kantinum og getur jafnvel leyst hafsentinn. Böddi getur leyst hafsentinn, vinstri bakvörðinn og djúpan á miðju - þó hann hafi langmest verið í vinstri bakverðinum. Ég tók eftir því þegar hann spilaði tvo leiki í byrjun síðasta tímabils vinstra megin í þriggja hafsentakerfi. Hann var að standa sig nokkuð vel í þeim leikjum, en vissulega gerði mistök líka, heilt yfir spilaði hann samt vel."
„Það er ekkert sem segir að Böddi og Johannes Vall geti ekki verið í sama liðinu. Þetta eru báðir mjög öflugir leikmenn. En hins vegar er núna samkeppni í vinstri bakverðinum og það verður vonandi til þess að við náum því besta út úr þeim tveimur."
Vill spila með fjögurra manna línu
Út frá þeim möguleika að annar þeirra spili sem hafsent, sérðu fyrir þér að spila einhvern tímann með þrjá miðverði?
„Við viljum spila með fjögurra manna varnarlínu, en það þróast stundum þannig þegar við dettum niður í varnarform og út frá því hvernig hin liðin spila, þá virkar stundum eins og við séum með þrjá hafsenta. Eftir að ég tók við þá stilltum við einu sinni upp með þrjá hafsenta, ég vil frekar vera með fjögurra manna línu. Það kom upp sú staða að menn túlkuðu eins og við værum með þrjá hafsenta, þá er það eftir að leikirnir hafa þróast þannig að í varnarforminu okkar erum við með fleiri í öftustu línu - andstæðingurinn kominn með fimm menn upp í sína fremstu línu. Böddi á eftir að nýtast okkur mjög vel í þessu."
Hafa ekki tekið menn bara til að taka þá
Það eru allir einhvern veginn tilbúnir að segja já núna, af hverju að stoppa? Hvað stoppar ykkur í því að taka alla þá leikmenn sem þið getið fengið?
„Við erum ekki bara að taka leikmenn til þess að taka þá, við erum að velja leikmenn í það sem við teljum okkur þurfa og vanti í hópinn. Við vorum komnir með mjög góða breidd inn á miðjuna og teljum okkur vera með ágætis beidd frammi - það að vísu gæti breyst ef það verður einhver sala á leikmönnum hjá okkur. Sérstaklega núna á meðan Erik er ennþá meiddur, þá vantaði okkur 'cover' í vörnina, og við erum komnir með það núna."
Líkur eru á því að sóknarmaðurinn Gabríel Snær Gunnarsson (2008) verði seldur til Svíþjóðar en færi þó líklegast ekki fyrr en um mitt sumar.
Eiginlega ótrúlegt að fylgjast með honum í endurhæfingunni
Miðvörðurinn Erik Tobias Sandberg meiddist á síðasta tímabili, missti máttinn í annarri höndinni. Hvernig er heilsan á honum í dag?
„Þetta eru mjög erfið meiðsli. Erik er algjör toppnáungi, ekki bara þrusu góður leikmaður, heldur líka algjört toppeintak. Það er eiginlega ótrúlegt að sjá hvernig hann er að takast á við þessu erfiðu meiðsli. Þetta eru svo sjaldgæf meiðsli að það er erfitt að fá skýr svör hjá læknum. Þetta er tekið dag frá degi og viku frá viku. Við erum klárlega að sjá framfarir hjá honum og erum vongóðir um að hann verði klár fyrir mótið."
Sáttur með breiddina hægra megin líka
Jón Gísli Eyland Gíslason hefur verið fastamaður í liði ÍA í hægri bakverðinum. Ertu með annan augljósan kost í hægri bakvörðinn?
„Já, Brynjar (Óðinn Atalson) er ungur strákur (2009) sem hefur verið að spila í hægri bakverðinum og hefur staðið sig mjög vel. Hann spilaði t.d. á móti Stjörnunni í Þungavigtarbikarnum. Við vitum hvernig það er með unga stráka, oft á tíðum eru þeir mun sterkari á undirbúningstímabilinu, en Brynjar hefur sýnt það að ég fer mjög sáttur að ég fer mjög sáttur með hann sem 'cover' og í baráttunni við Jón Gísla um stöðuna í liðinu. Svo eigum við aðra leikmenn sem geta hugsanlega leyst stöðuna ef í harðbakkann slær."
Vill ekki tjá sig um Tryggva - Ekki að leita að frekari styrkingu
ÍA hefur boðið tvívegis í Skagamanninn Tryggva Hrafn Haraldsson, leikmann Vals, í vetur. Vilt þú eitthvað tjá þig um áhuga ÍA á honum?
„Nei, þú ert að tala um samningsbundinn leikmann og ég ætla ekki að tjá mig um það."
„Ég lít þannig á hópinn núna að hann sé klár nema eitthvað komi upp hjá okkur; seljum fleiri leikmenn. Eða ef eitthvað mjög spennandi kemur upp. Eins og staðan er akkúrat núna erum við ekki að leita að leikmanni, en ef það opnast á eitthvað skemmtilegt þá held ég að þeir öflugu menn í stjórn sem reka ÍA í dag séu tilbúnir að skoða það," segir Lárus Orri.
Athugasemdir


