Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   sun 04. apríl 2021 16:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Holland: PSV aftur upp fyrir AZ - Ajax með gott forskot
Feyenoord, PSV og Ajax unnu sína leiki í hollensku deildinni, ekki í fyrsta sinn sem þessi stórlið vinna sína leiki.

Steven Berghuis skoraði og lagði upp í 2-0 sigri Feyenoord á Sittard. Donyell Malen, Denzel Dumfries og Mohammed Ihatteran skoruðu mörk PSV gegn Heracles. Mario Gotze lagði upp mark Ihatteran og Olivier Boscagli lagði upp hin mörkin.

Heerenveen komst yfir gegn toppliði Ajax en mörk frá Dusan Tadic og Sebastien Haller sáu til þess að Ajax tók öll þrjú stigin á útivelli.

Ajax er með ellefu stiga (69) forskot, og á leik til góða, á PSV og AZ Alkmaar (58). PSV er með betri markatölu en lið Alberts Guðmundssonar. Vitesse (55) er í 4. sætnu með þremur stigum minna en 2. og 3. sætið og Feyenoord er svo í 5. sætinu með 51 stig.

AZ vann sinn leik í gær og var það Albert sem skoraði sigurmarkið.

Feyenoord 2 - 0 Sittard

PSV 3 - 0 Heracles

Heerenveen 1 - 2 Ajax
Stöðutaflan Holland Holland efsta deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 PSV 30 24 2 4 84 40 +44 74
2 Feyenoord 30 16 7 7 62 41 +21 55
3 NEC 30 15 9 6 72 48 +24 54
4 Twente 30 14 11 5 51 32 +19 53
5 Ajax 30 13 12 5 57 37 +20 51
6 AZ 30 14 6 10 52 45 +7 48
7 Utrecht 30 12 8 10 49 36 +13 44
8 Heerenveen 30 12 8 10 53 50 +3 44
9 Groningen 30 12 6 12 42 37 +5 42
10 Sparta Rotterdam 30 12 6 12 35 49 -14 42
11 Go Ahead Eagles 30 8 12 10 50 45 +5 36
12 Fortuna Sittard 30 10 6 14 44 55 -11 36
13 Zwolle 30 8 10 12 40 60 -20 34
14 Volendam 30 7 7 16 31 50 -19 28
15 Excelsior 30 7 7 16 31 51 -20 28
16 Telstar 30 6 9 15 39 52 -13 27
17 NAC 30 5 10 15 30 51 -21 25
18 Heracles Almelo 30 5 4 21 34 77 -43 19
Slapp
banner
banner
banner