Fotbolti.net
04.05.21 - 20:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Championship: Rotherham enn á lífi - Derby getur fallið

Paul Warne, stjóri Rotherham

Paul Warne, stjóri Rotherham

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Luton 0 - 0 Rotherham</b>
Rotherham er enn á lífi í Championship deildinni. Liðið er áfram í fallsæti eftir markalaust jafntefli gegn Luton.

Það eru tvö stig upp í öruggt sæti og einn leikur eftir. Rotherham þarf að vinna Cardiff á útivelli í lokaumferðinni og treysta á að Derby tapi enn einum leiknum í röð þegar liðið mætir Sheffield Wednesday í lokaumferðinni.

Rotherham er með betri markatölu en Derby og því má Derby fá eitt stig ef Rotherham vinnur, þá heldur Rotherham sér uppi í B-deildinni.

Leikurinn í dag var mjög jafn en heimamenn í Luton reyndu oftar að skora heldur en gestirnir. Luton er í 12. sæti og getur ekki endað neðar. Liðið getur hæst endað í 9. sæti deildarinnar.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough13+1328
2Swansea13+726
3Wolves13+724
4West Brom13+524
5Southampton13+1523
6Birmingham13+1023
7Stoke City13+423
8West Ham13+1522
9QPR13+520
10Sheffield Utd13+219
11Portsmouth13+119
12Millwall13+218
13Blackburn13-118
14Bristol City13-218
15Norwich13-115
16Lincoln City13-915
17Cardiff City13-114
18Wrexham13-414
19Bolton13-814
20Charlton Athletic13-1014
21Watford13-1111
22Burnley13-89
23Derby County13-147
24Preston NE13-175
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.