Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 04. september 2019 16:18
Elvar Geir Magnússon
Lokahópur U21 fyrir komandi leiki - Sex úr Pepsi Max detta út
Alfons Sampsted er reyndastur í hópnum.
Alfons Sampsted er reyndastur í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt lokahópinn fyrir leikina gegn Lúxemborg og Armeníu.

Ísland mætir Lúxemborg 6. september og Armeníu 9. september. Báðir leikirnir fara fram á Víkingsvelli og hefjast kl. 17:00. Þetta eru fyrstu leikir Íslands í undankeppni fyrir EM 2021.

Arnar valdi upphaflega 26 leikmenn en skar hópinn niður í 20 leikmenn í dag.

Daði Freyr Arnarsson (FH), Birkir Valur Jónsson (HK), Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingur), Erlingur Agnarsson (Víkingur), Finnur Tómas Pálmason (KR) og Valdimar Þór Ingimundarson (Fylkir) voru í æfingahópnum en komust ekki í gegnum niðurskurð.

HÓPURINN:
Elías Rafn Ólafsson | Aarhus Fremad | 2 leikir
Patrik Sigurður Gunnarsson | Brentford | 2 leikir

Alfons Sampsted | Breiðablik | 21 leikur, 1 mark
Jón Dagur Þorsteinsson | AGF | 14 leikir, 3 mörk
Mikael Neville Anderson | FC Midtjylland | 10 leikir
Ari Leifsson | Fylkir | 9 leikir
Alex Þór Hauksson | Stjarnan | 9 leikir, 1 mark
Hörður Ingi Gunnarsson | ÍA | 8 leikir
Torfi Tímoteus Gunnarsson | KA | 8 leikir
Willum Þór Willumsson | BATE Borisov | 8 leikir
Daníel Hafsteinsson | Helsingborgs IF | 7 leikir
Stefán Teitur Þórðarson | ÍA | 7 leikir, 1 mark
Kolbeinn Birgir Finnsson | Dortmund | 6 leikir
Sveinn Aron Guðjohnsen | Spezia | 6 leikir, 1 mark
Guðmundur Andri Tryggvason | Víkingur R. | 5 leikir
Jónatan Ingi Jónsson | FH | 5 leikir
Brynjólfur Darri Willumsson | Breiðablik | 3 leikir
Ísak Óli Ólafsson | Keflavík | 1 leikur
Kolbeinn Þórðarson | Lommel | 1 leikur
Þórir Jóhann Helgason | FH | 1 leikur
Athugasemdir
banner
banner
banner