Fotbolti.net
04.10.20 - 17:24
Ívan Guðjón Baldursson

England: Tottenham skoraði sex á Old Trafford

England: Tottenham skoraði sex á Old Trafford
Canon

Mynd: Getty Images

Man Utd 1 - 6 Tottenham
1-0 Bruno Fernandes ('2, víti)
1-1 Tanguy Ndombele ('4)
1-2 Son Heung-min ('7)
1-3 Harry Kane ('30)
1-4 Son Heung-min ('37)
1-5 Serge Aurier ('51)
1-6 Harry Kane ('79, víti)
Rautt spjald: Anthony Martial, Man Utd ('28)
Í dag er góður dagur fyrir Jose Mourinho sem mætti aftur á Old Trafford og gjörsamlega rúllaði yfir sína fyrrum vinnuveitendur í Manchester United.

Rauðu djöflarnir komust yfir í upphafi leiks þegar Bruno Fernandes skoraði úr vítaspyrnu eftir að Davinson Sanchez braut á Anthony Martial innan vítateigs. Sú gleði var þó skammlíf því jöfnunarmark Tottenham kom skömmu síðar eftir svakalegan vandræðagang í vörn heimamanna. Harry Maguire og Luke Shaw vissu ekki hvað sneri upp né niður og endaði Tanguy Ndombele á því að setja boltann í netið með hjálp frá Erik Lamela.

Þremur mínútum síðar tóku gestirnir forystuna þegar Heung-min Son slapp í gegn eftir snögga aukaspyrnu Harry Kane og skoraði.

Mikið fjör var í leiknum og fékk Martial að líta beint rautt spjald á 28. mínútu. Hann var þá í slagtogi við Lamela innan teigs og setti höndina í andlitið á honum. Argentínumaðurinn lét sig falla til jarðar og fór rauða spjaldið á loft.

Aðeins tveimur mínútum síðar var Kane búinn að tvöfalda forystu Tottenham eftir slæm varnarmistök Eric Bailly sem gaf boltann frá sér í vörn. Son gerði svo fjórða mark gestanna áður en flautað var til leikhlés, eftir lága fyrirgjöf frá Serge Aurier.

Í upphafi síðari hálfleiks gerði Aurier fimmta mark Spurs eftir að Paul Pogba sofnaði á verðinum. Síðasta mark leiksins gerði Kane úr vítaspyrnu á 79. mínútu, eftir að Pogba braut á Ben Davies innan teigs.

Sögulegur sigur Tottenham staðreynd og fer Mourinho eflaust ánægður að sofa í kvöld. Tottenham er með sjö stig eftir fjórar umferðir. Man Utd er með þrjú stig eftir þrjár.
England: Tottenham skoraði sex á Old Trafford
Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal1+33
2Brentford1+33
3Everton1+23
4Hull City1+23
5Ipswich Town1+13
6Leeds1+13
7Aston Villa000
8Chelsea000
9Fulham000
10Liverpool000
11Man City000
12Newcastle000
13Bournemouth000
14Brighton000
15Sunderland1-10
16Nott. Forest1-10
17Man Utd1-20
18West Ham38-1939
18Crystal Palace1-20
19Burnley38-3722
19Tottenham1-30
20Wolves38-4120
20Coventry1-30
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.