Fotbolti.net
04.10.20 - 20:53
Ívan Guðjón Baldursson

Mourinho: Þeir gátu ekki stoppað okkur 11 gegn 11

Mourinho: Þeir gátu ekki stoppað okkur 11 gegn 11
Canon

Mynd: Getty Images

Jose Mourinho var kátur eftir stórsigur Tottenham gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þar hafði Mourinho betur gegn sínum fyrrum vinnuveitendum sem ráku hann til að ráða Ole Gunnar Solskjær í desember 2018.
„Ég er hissa að hafa unnið svona stórt, það er ekki venjulegt hérna. Ég gæti komið hingað 20 sinnum í viðbót án þess að vinna svona stórt. Þetta gerðist því ég er með frábært lið í höndunum sem er fullt af sjálfstrausti. Við vorum betri allan leikinn," sagði Mourinho.

„Þetta er sögulegur sigur fyrir félagið og fyrir mig sjálfan. Ég hef unnið hérna oft, oftast með Manchester United en líka með Chelsea, Real Madrid og núna Tottenham. Við vorum betra liðið í dag, þeir gátu ekki stoppað okkur þegar við vorum 11 gegn 11. Við vorum marki yfir og að klúðra góðum færum.

„Eftir að hafa fengið þetta mark á okkur á fyrstu mínútu hefðum við getað skíttapað en ég er stoltur af viðbrögðum strákanna. Þeir stóðu sig ótrúlega vel."


Anthony Martial fékk umdeilt rautt spjald á 28. mínútu, í stöðunni 1-2 fyrir Tottenham. Gestirnir bættu tveimur mörkum við á næstu mínútum og var Mourinho spurður út í rauða spjaldið.

„Ég er ekki búinn að sjá atvikið. Ég veit ekki nákvæmlega hvað gerðist, ég þarf að skoða þetta."

Að lokum var Mourinho spurður út í Gareth Bale, sem er að vinna í því að koma sér aftur í stand eftir meiðsli.

„Gareth er ekki meiddur og verður vonandi klár í slaginn strax í næsta leik."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.