PSG leiðir kapphlaupið um Salah - Tuchel á blaði Man Utd - Newcastle líklegt til að reyna aftur við Guehi
   fös 04. október 2024 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Maupay fékk tvö gul á þremur mínútum
Mynd: Getty Images

Marseille 1-1 Angers
1-0 Jonathan Rowe ('51 )
2-0 Farid El Melali ('54 )
Rautt spjald: Lilian Rao-Lisoa, Angers ('25), Neal Maupay, Marseiille ('30)


Marseille mistókst að komast á toppinn þegar liðið gerði jafntefli gegn Angers í frönsku deildinni í dag.

Lilan Rao-Lisoa, leikmaður Angers, var rekinn af velli eftir 25 mínútna leik en þeir voru ekki lengi manni færri. Mínútu síðar fékk Neal Maupay gult spjald fyrir að rífa markvörð Angers niður.

Þremur mínútum eftir það fékk hann sitt annað gula spjald og þar með rautt þegar hann fór seint í Jean-Eudes Aholou.

Það var markalaust í hálfleik en Jonathan Rowe kom inn á sem varamaður strax í hálfleik hjá Marseille og kom liðinu yfir. Þremur mínútum síðar jafnaði Angers metin og þar við sat.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner