Fotbolti.net
04.11.24 - 21:59
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Ótrúleg innkoma hjá Harry Wilson í endurkomusigri

England: Ótrúleg innkoma hjá Harry Wilson í endurkomusigri
Canon

Mynd: Getty Images

Fulham 2 - 1 Brentford
0-1 Vitaly Janelt ('24 )
1-1 Harry Wilson ('90 )
2-1 Harry Wilson ('90 )

Það var ótrúleg dramatík þegar Fulham fékk Brentford í heimsókn í kvöld.

Fulham var með mikla yfirburði í fyrri hálfleik en þvert gegn gangi leiksins skoraði Vitaly Janelt fyrir Brentford um miðjan fyrri hálfleikinn með góðu skoti fyrir utan vítateiginn.

Mark Flekken í marki Brentford átti frábæra tvöfalda markvörslu en meiddist á hné í kjölfarið og Hákon Rafn Valdimarsson fór að hita upp en Flekken náði að jafna sig og því kom fyrsti leikur Hákons í úrvalsdeildinni ekki í kvöld.

Yfirburðir heimamanna voru enn meiri í seinni hálfleik en þeir virtust ekki ætla að ná einhverju út úr leiknum.

Harry Wilson kom inn á sem varamaður og jafnaði metin á glæsilegan hátt í uppbótatíma. Hann var ekki hættur því hann tryggði Fulham sigurinn þegar hann skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Antonee Robinson á lokasekúndum leiksins.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City7+1221
2Arsenal7+618
3Brighton7+1816
4Chelsea7+413
5Liverpool7+112
6Brentford7+510
7Leeds7+310
8Everton7+110
9Hull City7+19
10Ipswich Town7-49
11Newcastle7-48
12Aston Villa7-48
13Man Utd707
14Crystal Palace7-87
15Bournemouth7-46
16Tottenham7-46
17Coventry7-86
18Fulham7-35
19Nott. Forest7-45
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.