Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 05. maí 2021 21:49
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Chelsea og Real: Kante bestur - Hazard verstur
Mynd: EPA
Mynd: Getty Images
Chelsea tók Real Madrid í kennslustund er liðin mættust í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Timo Werner og Mason Mount skoruðu mörk heimamanna sem hefðu hæglega getað bætt tveimur eða þremur við.

Sky Sports hefur gefið leikmönnum einkunnir og valið N'Golo Kante sem mann leiksins. Kante átti stóran þátt í báðum mörkum Chelsea og var frábær á miðjunni.

Edouard Mendy varði glæsilega í fyrri hálfleik og Antonio Rüdiger átti stórleik í hjarta varnarinnar. Allir fá þeir 8 í einkunn á meðan restin af liði Chelsea fær 7.

Eden Hazard og Eder Militao voru verstir á vellinum og fá þeir 4 í einkunn. Liðsfélagar þeirra fá ýmist 5 eða 6 fyrir sinn þátt að undanskildum markverðinum Thibaut Courtois sem fær 7 í einkunn.

Chelsea: Mendy (8); Christensen (7), Thiago Silva (7), Rudiger (8), Azpilicueta (7), Kante (8), Jorginho (7), Chilwell (7), Mount (7), Havertz (7), Werner (7)
Varamaður: Pulisic (7)

Real Madrid: Courtois (7); Nacho (5), Militao (4), Ramos (6), Mendy (5), Kroos (6), Modric (6), Casemiro (5), Hazard (4), Vinicius Junior (5), Benzema (6)
Varamenn: Valverde (5), Asensio (5),
Athugasemdir
banner
banner