Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 05. júlí 2022 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pistill: Pistlar á Fótbolta.net eru viðhorf höfundar og þurfa ekki endilega að endurspegla viðhorf vefsins eða ritstjórnar hans.
Ferðasaga frá Herzo: Væru fleiri hérna ef þetta væru strákar?
Stelpurnar okkar fara ekki á EM bara til að vera með
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Icelandair
Frá æfingu landsliðsins í gær.
Frá æfingu landsliðsins í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leiðtoginn Dagný Brynjarsdóttir ræðir við Amöndu Andradóttur á æfingu.
Leiðtoginn Dagný Brynjarsdóttir ræðir við Amöndu Andradóttur á æfingu.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir.
Fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðrún Arnardóttir og Sif Atladóttir.
Guðrún Arnardóttir og Sif Atladóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sveindís Jane er ein af vonarstjörnum liðsins.
Sveindís Jane er ein af vonarstjörnum liðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður Bayern München.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður Bayern München.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Steini fer yfir málin með liðinu á æfingu í gær.
Steini fer yfir málin með liðinu á æfingu í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gunnhildur Yrsa ræðir við Elínu Mettu á æfingu.
Gunnhildur Yrsa ræðir við Elínu Mettu á æfingu.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Áslaug Munda er ein af ellefu sem er að fara á fyrsta stórmótið.
Áslaug Munda er ein af ellefu sem er að fara á fyrsta stórmótið.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Áfram Ísland.
Áfram Ísland.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ég er búinn að vera hérna undanfarna fjóra daga, en ég kann ekki enn að bera fram nafnið á þessum 23 þúsund manna sem er að finna í Bæjarlandi.

Herzogenaurach er bara 'Herzo' í mínum augum og verður það líklega alltaf.

Þetta er staður sem ég bjóst ekki endilega við að ég myndi koma á fyrir svona fimm árum síðan. Ég vissi reyndar ekkert hvar eða hvað 'Herzo' væri fyrir svona mánuði síðan. En þetta er huggulegur staður og hefur verið fínt að vera hérna. Hitinn hefur reyndar á köflum verið alltof, alltof mikill fyrir litla Íslendinginn sem þekkir það best að vera í roki og rigningu.

Ferðin byrjaði í Póllandi þar liðið vinna flottan 1-3 sigur eftir endurkomu í seinni hálfleik. Eftir þann leik tók ég svo lest frá Poznan til Berlín. Ég stoppaði í Berlín og skoðaði eins mikið og ég gat á um þremur klukkustundum. Ég sá Brandenborgarhliðið og veggspjald af Pútín hakkað í þvottavél (eins skrítið og það hljómar).

Þessi ferð tók mjög mikla niðursveiflu þegar ég lenti í Nürnberg því þar hitti ég fyrir einhvern skelfilegasta einstakling sem ég hef á ævi minni hitt. Ég kom út af lestarstöðinni um ellefuleytið eftir ferðalag allan daginn. Ákvað ég að taka leigubíl því það er ekki Uber í Þýskalandi. Leigubílstjórinn var geðveikt sáttur að fá mig inn í bílinn en svo trompaðist hann þegar hann áttaði sig á því hversu stutt hann var að fara með mig. Hann var þá búinn að leggja af stað án þess að vita hvert hann væri að fara með mig. Ég var þarna með ferðatösku og bakpoka seint að kvöldi í borg sem ég hafði aldrei komið til; ég taldi það best að ganga ekki tæpa tvo kílómetra á því augnabliki, en hann var samt sem áður brjálaður og lét mig vita af því. Svo tók hann annað reiðiskast þegar ég var ekki með reiðufé, heldur bara greiðslukort. Ég vona að þessi maður - sem á ekki að vera að vinna í þjónustugeiranum - sæki sér þá hjálp sem hann greinilega þarf á að halda.

En nóg um það.

Ég tók nóttina í Nürnberg og ferðaðist svo til Herzo snemma daginn eftir. Hér hef ég dvalið á litlu hóteli sem er á tveimur hæðum. Ég spurði í móttökunni og hérna eru einhver 200 herbergi en líklega bara um 20 manns að gista. Hérna er alls ekki mikið um að vera; ekki mikið um veitingastaði og eða einhverja afþreyingu. Það er mjög rólegt á kvöldin í Herzo og er varla sálu að sjá þegar ég geng um og reyni að finna stað til að snæða á.

Samt kann ég miklu betur við Herzo en Nürnberg. Leigubílstjórinn eyðilagði Nürnberg algjörlega fyrir mér. Ferðin tók uppsveiflu aftur þegar ég kom hingað; allt fólkið verið almennilegt að minnsta kosti og mjög fínt að vera hérna í vinnu þennan tíma.

Bærinn er þekktastur fyrir það að vera heimabær Puma og Adidas, heimabær bræðranna Adi og Rudi Dassler sem stofnuðu þessi tvö merku íþróttavörufyrirtæki. Sagan af þeim bræðrum er þekkt; þeir störfuðu fyrst saman en svo fóru þeir í sitthvora áttina í kjölfarið á miklu rifrildi þeirra á milli.

Það tekur mig um hálftíma að ganga að höfuðstöðvum Puma sem eru mjög stórfenglegar, en þar í nágrenninu dvelur okkar frábæra landslið.

Keppnisskapið á æfingum
Stelpurnar okkar eru hérna í undirbúningi fyrir Evrópumótið sem hefst á morgun með stórleik Englands og Noregs. Það hefur farið vel um liðið þar sem þær hafa dvalið í Herzo og æft í Fürth sem er í um 15 mínútna akstursfjarlægð.

Ég hef fengið mjög góðan aðgang að liðinu í undirbúningnum og þakka ég KSÍ fyrir það. Líklega hefur verið frekar einfalt að koma mér að þar sem ég er eini fjölmiðlamaðurinn að fylgja liðinu í Þýskalandi. Ég kvarta persónulega alls ekki, en ég hef pælt mikið í því hversu mikill munurinn væri ef karlalandsliðið væri hérna úti að undirbúa sig fyrir EM. Væru þá fleiri fjölmiðlar að senda fólk út til að fjalla um lokaundirbúninginn fyrir mót? Ég veit það auðvitað ekki - ég get bara giskað - en ég spyr mig að því. Ég veit ekki hver ástæðan er, það er líklega annarra að svara.

Ég er allavega mjög ánægður að Fótbolti.net hafi farið í þessa ferð því stelpurnar okkar - sem eru miklar fyrirmyndir - eiga svo sannarlega skilið að fá athygli og umfjöllun í þessum undirbúning hérna úti.

Það skal samt tekið fram að mér finnst umfjöllunin um stelpurnar okkar hafa verið mjög skemmtileg á síðustu vikum. Get ég þar sérstaklega nefnt sjónvarpsþætti sem RÚV og Morgunblaðið hafa framleitt þar sem farið er víða til að hitta leikmenn og kynnast þeim.

Leikmenn og þjálfarar liðsins hafa gefið mikið af sér í þessari ferð og verið mjög vingjarnleg. Hér á síðunni hafa birst viðtöl frá Póllandi og Þýskalandi, bæði stutt viðtöl í myndbandsformi og svo aðeins lengri í hlaðvarpsformi. Ég hef einnig brugðið mér í nýtt hlutverk: Að taka myndir. Það er ekki eitthvað sem ég hef gert áður, en vaninn er sá að ljósmyndarar fá bara að vera fyrstu 15 mínúturnar á æfingum landsliðsins. Síðustu daga hef ég hins vegar fengið að vera allan tímann að mynda og fengið svo að taka viðtöl eftir æfingarnar.

Þetta allt saman - viðtölin, myndirnar, æfingarnar og leikurinn út í Póllandi - hefur gefið mér nokkra innsýn inn í það hvernig liðið virkar og fúnkerar þegar stutt er í Evrópumótið á Englandi.

Keppnisskapið er það sem er mér efst í huga. Á æfingu á mánudag var spilað á stórum velli, tvö ellefu manna lið og á meðan keppt var þá var kallað eftir rangstöðu og gulum spjöldum. Þetta var æfing, en það sýnir bara hversu heitt leikmenn í þessu liði vilja vinna, sama hvort það sé á æfingum eða í leikjum. Það eru ekki allir leikmenn sem eru að biðja um rangstöðu og gul spjöld á æfingum en þetta smitar út frá sér í allan hópinn. Það færir mér persónulega aukna trú fyrir EM og komandi ár. Þetta eru sigurvegarar, keppnisfólk og sömuleiðis íþróttakonur í hæsta gæðaflokki.

Það er hlátur og léttleiki inn á milli og auðvitað mikilvægt að hafa gaman, en það er alveg ljóst að liðið er í þessu til að ná árangri og til þess að vinna.

Þetta er ekkert eðlilega spennandi lið að mínu mati og mér finnst blandan ótrúlega góð. Það eru frábærir ungir leikmenn í hópnum í bland við reynslumeiri leikmenn sem eru tilbúnir að gefa gífurlega mikið af sér.

Á æfingu á mánudag þá tók Dagný Brynjarsdóttir, leikmaður West Ham, sér góðan tíma til að ræða við hina 18 ára gömlu Amöndu Andradóttur á meðan leikmenn fengu sér vatn. Hún var þar að útskýra hvað hefði mátt fara betur í spilinu þar á undan, hvað hún sá sem hægt var að laga. Það að hún taki sér þennan tíma, það mun hjálpa eins ungum leikmanni og Amöndu gríðarlega. Dagný, sem hefur verið lengi í þessum bransa, er leiðtogi og það er fullt af þeim í þessum hóp.

Ég get ímyndað mér að þessir dagar hérna úti hafi gefið ungu leikmönnunum og þeim sem eru að fara á sitt fyrsta stórmót mjög mikið. Hópurinn er búinn að vera saman lengi núna og er orðinn gríðarlega samheldinn.

Hvað er ásættanlegur árangur?
Ég er gríðarlega spenntur fyrir þessu móti. Þetta er fyrsta stórmótið sem ég er að fara á og ég get hreinlega ekki beðið.

Það er erfitt að segja til um hvað sé ásættanlegur árangur hjá íslenska liðinu en ég þykist vita að þær verði svekktar ef þær komast ekki upp úr riðlinum og fá ekki að máta sig í útsláttarkeppninni. Á EM 2017 töpuðum við öllum leikjunum og það stendur enn augljóslega svolítið í leikmönnunum sem fóru þangað.

Liðið er mikið breytt frá því fyrir fimm árum og eru ellefu leikmenn í okkar liði að fara á sitt fyrsta stórmót. Riðillinn er mjög erfiður en við getum farið upp úr honum, klárlega. Ef við tökum sigur í fyrsta leik á móti Belgíu, þá getur allt gerst.

Ef við komumst ekki áfram, þá held ég samt sem áður að það sé ástæða til bjartsýni. Við erum með frábæra þjálfara og virkilega spennandi unga leikmenn sem eru bara rétt að byrja. Framtíðin er svo sannarlega björt. Næst eftir EM er úrslitaleikur gegn Hollandi um sæti beint á HM. Kvennalandsliðið er þar í möguleika á að komast á Heimsmeistaramótið í fyrsta sinn.

Ísland er samt ekki í þessu bara til að vera með, þær vilja vinna enda er ekkert skemmtilegra en það.

Áfram Ísland!

Leikir Íslands á EM:
10. júlí gegn Belgíu (Academy Stadium, Manchester)
14. júlí gegn Ítalíu (Academy Stadium, Manchester)
18. júlí gegn Frakklandi (New York Stadium, Rotherham)

Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á tvö hlaðvörp sem voru tekin á hóteli liðsins í Þýskalandi. Það þriðja mun birtast hér á síðunni síðar á þessum ágæta þriðjudegi. Ég mæli svo sannarlega með því að hafa augun opin fyrir því.
Saga aðstoðarþjálfarans - Frá KF Nörd á Evrópumótið í Englandi
Miðverðirnir fá sviðsljósið - Glódís og Guðrún í spjalli fyrir EM
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner