Skoski vinstri bakvörðurinn Aaron Hickey mætti til Bretlands í dag til þess að fara í læknisskoðun áður en hann gengur í raðir Brentford frá ítalska félaginu Bologna.
Hickey er tvítugur og hefur spilað með Bologna síðustu tvö árin. Hann kom til félagsins frá Hearts í Skotlandi og náði strax að vinna sér sæti í liði Bologna. Á þessum tveimur árum hefur hann spilað 47 leiki í Seríu A og gert fimm mörk.
Hickey mun skrifa undir fimm ára samning við Brentford.
Hann er ekki eini leikmaðurinn sem Brentford er að reyna klára kaup á Keane Lewis-Potter frá Hull.
Athugasemdir