Fotbolti.net
05.07.26 - 18:57
Ívan Guðjón Baldursson

Trump lét afturkalla leikbannið

Trump lét afturkalla leikbannið
Canon

Mynd: EPA

Donald Trump Bandaríkjaforseti heyrði beint í Gianni Infantino, forseta FIFA, til að láta afturkalla sjálfvirka leikbannið sem Folarin Balogun var dæmdur í í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins.
Balogun hefur verið í miklu stuði á HM og yrði það mikill missir fyrir Bandaríkin að hafa hann ekki með í 16-liða úrslitum mótsins.

Hann fékk beint rautt spjald í sigri gegn Bosníu og var dómurinn gagnrýndur af fótboltasérfræðingum víða um heim. Bandaríkjamenn voru allt annað en sáttir og hringdi Hvíta húsið í FIFA samtökin til að láta lagfæra mistökin.

Samkvæmt heimildarmönnum FIFA var málið látið til sérstakrar rannsóknarnefndar sem yfirfór gögnin og ákvað að afturkalla leikbannið. Heimildarmenn FIFA harðneita að Hvíta húsið hafi haft einhver völd yfir lokaákvörðuninni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.