Heyrt var í Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, forsætisráðherra, í útvarpsþætti Fótbolta.net í dag.
Sigmundur var hress í viðtalinu þar sem hann sagðist búast við íslenskum sigri gegn Kasakstan, en gat því miður ekki lofað allsherjarpartýi í boði ríkisstjórnarinnar.
Sigmundur var hress í viðtalinu þar sem hann sagðist búast við íslenskum sigri gegn Kasakstan, en gat því miður ekki lofað allsherjarpartýi í boði ríkisstjórnarinnar.
Viðtalið má heyra í heild í spilaranum hér að ofan
„Almennt er fótboltaáhuginn í meðallagi en hann er náttúrulega kominn upp úr öllu valdi núna," sagði forsætisráðherrann sem verður á vellinum er Ísland tekur á móti Kasökum á morgun.
„Ég svaf varla í nótt af spenningi yfir þessu, ég var reyndar að hugsa um eitt og annað til viðbótar en ég er mjög spenntur fyrir þessum leik. Ég er sannfærður um að við vinnum leikinn, en þori hins vegar ekki að leiða hugann að því hvernig ég ætla að halda uppá sigurinn því maður vill ekki jinxa þetta á lokametrunum."
Sigmundur var spurður hvort ríkisstjórnin myndi ekki skella í svakalegt partý skildi íslenska liðið sigra Kasaka og benti aftur á að, eins og hann sagði áður, það má ekki skipuleggja svona fyrirfram til að jinxa ekki.
„Það er nú málið, maður má ekki skipuleggja partý áður en niðurstaðan liggur fyrir. Ég hugsa að þetta verði sjálfsprottið og skemmtilegt partý, það verða allir í það góðu skapi að það verður ekkert vesen."
Sigmundur horfði á sögulegan sigur Íslands gegn Hollendingum á Amsterdam Arena úr stofunni
„Það sá aðeins á húsgögnunum eftir leikinn, ég held það sé fyrir bestu að það sjái ekki margir til mín þegar ég er að horfa á þessa landsleiki."
Viðtalið má heyra í heild í spilaranum hér að ofan
Athugasemdir


