05.10.19 - 16:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spánn: Eden Hazard kominn á blað hjá Real

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Tveimur leikjum er lokið í spænsku La Liga í dag.
Í fyrsta leik dagsins sigraði Levante lið Leganes á útivelli. Marti Roger kom gestunum yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks með marki úr vítaspyrnu. Jose Campana tvöfaldaði forystuna með marki úr aukaspyrnu á 49. mínútu.
Martin Braithwaite kom inn á sem varamaður hjá Leganes og minnkaði muninn á 76. mínútu. Braithwaite fékk svo dauðafæri á að jafna leikinn þegar hann tók vítaspyrnu þegar tíu mínútu lifðu leiks. Vítaspyrnan var varinn og Levante hirti stigin þrjú.
Topplið Real Madrid tók á móti Granada klukkan 14:00. Karim Benzema kom heimamönnum yfir strax á 2. mínútu eftir <a href="https://fotbolti.net/news/05-10-2019/hugguleg-stodsending-bale-i-marki-benzema" target="_blank">huggulega stoðsendingu frá Gareth Bale.</a>
Eden Hazard skoraði svo annað mark Real í uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir undirbúning frá Federico Valverde. Þetta var fyrsta mark Hazard fyrir Real í keppnisleik. Hazard lagði svo upp þriðja mark Real fyrir varamanninn Luka Modric á 61. mínútu.
Granada skoraði næstu tvö mörk og gerði leikinn spennandi en James Rodriguez gerði fjórða mark Real í uppbótartíma og innsiglaði sigurinn.

Leganes 1 - 2 Levante
0-1 Roger Marti ('45, víti )
0-2 Jose Campana ('49 )
1-2 Martin Braithwaite ('76 )
1-2 Martin Braithwaite ('81 , Misnotað víti)
Real Madrid 4 - 2 Granada CF
1-0 Karim Benzema ('2 )
2-0 Eden Hazard ('46 )
3-0 Luka Modric ('61 )
3-1 Darwin Machis ('69 , víti)
3-2 Domingos Duarte ('77)
4-2 James Rodriguez ('90+2)

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Real Madrid | 3 | +8 | 9 |
| 2 | Atletico Madrid | 3 | +4 | 7 |
| 3 | Alaves | 3 | +4 | 7 |
| 4 | Barcelona | 2 | +7 | 6 |
| 5 | Sevilla | 3 | +1 | 6 |
| 6 | Betis | 3 | -1 | 6 |
| 7 | Deportivo | 3 | +2 | 5 |
| 8 | Osasuna | 2 | +1 | 4 |
| 9 | Racing Santander | 3 | 0 | 4 |
| 10 | Levante | 3 | 0 | 4 |
| 11 | Espanyol | 3 | +1 | 3 |
| 12 | Athletic | 3 | -2 | 3 |
| 13 | Getafe | 2 | -2 | 3 |
| 14 | Real Sociedad | 3 | -3 | 3 |
| 15 | Villarreal | 3 | -1 | 2 |
| 16 | Vallecano | 2 | -1 | 1 |
| 17 | Celta | 3 | -3 | 1 |
| 18 | Valencia | 3 | -3 | 1 |
| 19 | Elche | 3 | -6 | 1 |
| 20 | Malaga | 3 | -6 | 1 |