Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
   mið 05. október 2022 22:50
Sverrir Örn Einarsson
Danijel Djuric: Ég hef aldrei tapað í Víkingstreyjunni á Víkingsvellinum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var ótrúlega gaman og geðveikt að vinna þennan leik. Við höfðum alltaf trú á því og þegar ég kom inná hafði ég á tilfinningunni að við myndum sækja eitthvað úr þessum leik.“ Sagði ein af hetjum Víkinga í kvöld Danijel Dejan Djuric sem kom inná í eftir um klukkutíma leik í stöðunni 0-2 og skoraði tvívegis í mögnuðum 3-2 endurkomu sigri Víkinga á Val í Víkinni fyrr í kvöld.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 -  2 Valur

Víkingar léku í 120 mínútur gegn FH á laugardaginn í framlengdum bikarúrslitaleik þar sem Víkingar stóðu uppi sem sigurvegarar. Sat sá leikur eitthvað í leikmönnum Víkings?

„Já alveg smá. Ég væri að ljúga að þér ef ég segði að 120 mínútur sætu ekki í mönnum. En þegar ég kom inná vissi ég að ég þyrfti að sýna mína hæfileika og þarf að fara sýna stöðugleika sem ég þarf að bæta.“

Víkingar hafa ekki tapað mörgum leikjum á heimavelli þetta sumarið og og eflaust sætt fyrir Dani að geta fagnað því að sú varð heldur ekki raunin í kvöld.

„Ég hef aldrei tapað í Víkingstreyjunni á Víkingsvellinum og vill halda því þannig áfram þannig að þetta var geðveikt gaman,“

Sagði Danijel en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan.
Slapp
banner