Fotbolti.net
05.11.19 - 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Elínbergur: Ætlum okkur að sjálfsögðu áfram

Auglýsing
Elínbergur Sveinsson.

Elínbergur Sveinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net

„Þetta er gríðarlega sterkt lið og verður verðugt verkefni fyrir okkar stráka," segir Elínbergur Sveinsson, annar þjálfara 2. flokks ÍA, um leikinn gegn Derby County á morgun.

ÍA mætir Derby í 2. umferð Evrópukeppni unglingaliða. Leikurinn fer fram á Víkingsvelli.
„Þetta verður jafnframt mjög spennandi, að sjá hvar við stöndum gagnvart þeim. Þetta verður hörkuverkefni."

„Við ætlum okkur að sjálfsögðu áfram, við förum í alla leiki til þessa að vinna þá."

„Þessi keppni er náttúrulega gríðarlega spennandi og skemmtilegt fyrir okkur fyrst og fremst. Það er bónus að fá að taka þátt í þessu, og ákveðin forréttindi. Þetta er mikið ævintýri fyrir strákana og fyrir okkur sem félag."

„Við ætlum að njóta þess á morgun."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan, en þar ræðir Elínbergur meðal annars um 1. umferðina þar sem ÍA vann Levadia Tallinn frá Eistlandi, samanlagt 16-1.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.