Fotbolti.net
05.11.26 - 23:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Bellingham hafði áhrif á ákvörðun JJ Gabriel

Bellingham hafði áhrif á ákvörðun JJ Gabriel
Canon

Mynd: Man Utd

Real Madrid hefur komist að munnlegu samkomulagi við hinn sextán ára gamla JJ Gabriel um samning.
TEAMtalk segir að teymi Jude Bellingham, miðjumanns Real Madrid, hafi rætt við teymi Gabriel og hjálpað til að sannfæra hann um að skipta til Real Madrid og einnig þróunarstarf félagsins.

Þá er Man Utd að íhuga að höfða mál gegn Real Madrid vegna brottfarar hans.

Gabriel er í unglingaliði United en hann óskaði eftir því að fara frá félaginu í september og hefur ekki æft með liðinu síðan. Bayern München, Barcelona og Paris Saint-Germain höfðu einnig áhuga á honum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.