Fotbolti.net
05.11.26 - 14:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ljóst að Ólafur Ingi tekur ekki við Fylki

Ljóst að Ólafur Ingi tekur ekki við Fylki
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Lengjudeildin
Ólafur Ingi Skúlason verður ekki næsti þjálfari Fylkis. Ólafur var sterklega orðaður við starfið hjá uppeldisfélaginu eftir að hafa verið látinn fara frá Breiðabliki í lok síðasta mánaðar.

Ragnar Páll Bjarnason, formaður fótboltadeildar Fylkis, staðfestir í samtali við Fótbolta.net að Ólafur hafi komið á fund og rætt um möguleikann á því að hann taki við starfinu, en ekkert verður af því að þessu sinni. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafnaði Ólafur tækifærinu að taka við.

Fylkir er í þjálfaraleit eftir að Heimir Guðjónsson var keyptur til ÍA.
Þeir Sigurður Ragnar Eyjólfsson og Davíð Smári Lamude hafa einnig verið orðaðir við Fylki en Ragnar vildi ekki tjá sig frekar um þjálfaraleitina, einungis að ferlið væri enn í gangi.

Aron Baldvin Þórðarson, aðstoðarþjálfari Víkings, uppalinn Fylkismaður, er líka sagður ofarlega á blaði Fylkis.

Fyrsta æfing Fylkis eftir frí fer fram í dag og mun fimm manna teymi koma að þeirri æfingu. Það teymi er sett saman af Gunnari Einarssyni (2. flokks þjálfara), Arnóri Gauta Brynjólfssyni (styrktarþjálfara), Daða Ólafssyni (leikgreinandi), Daníel Bjarka Stefánssyni (sjúkraþjálfara) og Birni Metúsalem Aðalsteinssyni (markmannsþjálfara)
Gunni Einars, þjálfari 2. flokks Fylkis, og Siggi Raggi sem fundaði með Fylki í vikunni.

Gunni Einars, þjálfari 2. flokks Fylkis, og Siggi Raggi sem fundaði með Fylki í vikunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fær Aron Baldvin símtalið frá Fylki?

Fær Aron Baldvin símtalið frá Fylki?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Smári hefur einnig verið orðaður við Fylki.

Davíð Smári hefur einnig verið orðaður við Fylki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.